Búin...
...að "billa" í bak og fyrir og þrautarpínunni við að skrifa niður tímana mína er lokið í bili. Hjúkk, því þá fæ ég örugglega útborgað á morgun og vinnuveitandinn getur andað léttar! Mamma kallar hann einmitt stundum "The Firm", segir það með drafandi suðurríkjahreimi. Ég og Tom Cruise eigum þó að öðru leyti ekkert annað sameiginlegt en að hamast við að reyna að billa kúnnann. Hef reyndar ekki fundið neitt annað orð yfir þetta kapitalistíska verkefni. Að "útskulda" hefur heyrst en mér finnst það einhvern veginn svo hjákátlegt orð.
Er að hugsa um að halda upp á tímaskráninguna með því að fara upp í kantínu og ná mér í súkkulaði, enda í hálfgerðu föstudagsskapi. Rámar í að hafa séð Eitt sett á hlaupum í nammiskápnum :o)
...
No comments:
Post a Comment