Ofnæmi
Ég hef ekki verið þekkt fyrir það í gegnum tíðina að vera með ofnæmi fyrir nokkrum hlut, fyrir utan andlegt ofnæmi fyrir sumu að sjálfsögðu, og hef ég því verið blessunarlega laus við t.d. ofnæmislyf og hef ekki þurft að passa mig á neinu matarkyns - allavega ekki af þeim ástæðum. Fyrir nokkrum árum lenti ég á ofursamviskusömum svæfingarlækni þegar ég var að fara í hálskirtlatöku sem spurði mig í þaula út í öll hugsanleg ofnæmi og viðkvæmni fyrir efnum og ég veit ekki hvað og hvað. Eftir gríðarlega langa og mikla umhugsun og jafnvel sálkönnun af hálfu hins unga læknis þá komumst við að þeirri niðurstöðu að líklega væri ég með ofnæmi fyrir brúnum plástri. Þar hafði ég það staðfest eftir öll þessi ár að líklega væri ég barasta með eitt stykki ofnæmi. Ég er sem sagt eins og allir hinir. Með hjálp Kerlingar uppgötvaði ég og komst yfir annað ofnæmi. Þetta er öllu verra og hefur þjakað mig alla vikuna og valdið svefnleysi. Ég er greinilega með ofnæmi fyrir einhverri tegund af skordýrabiti. Allavega þegar ég er bitin í tána. Þvílíkar kvalir! Ég hef eftir fremsta megni reynt að leyna þessu út á við, enda hálfhallærislegt að svara spurningu um það af hverju ég sé hölt með því að ég hafi verið bitin í tána, nánar tiltekið annarri tá frá hægri. Og sé öll bólgin og aum og svo klæji mann alveg hroðalega mikið. Svo mikið að ég er búin að lesa þrjár bækur þessa vikuna. Allar á nóttunni. Af því að ég hef ekki getað sofið. Ég bar mig aumlega við Kerlingu um daginn sem tjáði mér að þetta væri ofnæmi og ég þyrfti almennilegt sterakrem. Sem hún auðvitað átti. Og síðan þá hef ég bæði sofið og haltra augljóslega minna. Hafi hún kæra þökk fyrir enda alltaf hægt að treysta á hana í málefnum er varða heilsufar.
Ég er sem sagt með ofnæmi fyrir brúnum plástri og táabiti.
..
No comments:
Post a Comment