Rænuleysi í sveitinni
Mig hefur gripið rænuleysi sem venjulega lætur ekki á sér kræla fyrr en í skammdeginu. Hefur líklega eitthvað með veðrið að gera. Vá, þvílíkt haustveður! Það varð næstum því dimmt um miðjan dag í mestu rigningarhríðunum. Alveg magnað.
Talandi um vont veður, þá datt ég um þessa síðu um daginn. Get endalaust gleymt mér við að skoða hana og láta mig dreyma um lúxusfrí á Indlandshafi þegar ég verð stór. Ég fann þessa síðu í Country Living, einu af mínu uppáhaldsblöðum, ekki síst vegna efnisyfirlitsins aftast þar sem er að finna linka á ýmislegt áhugavert, eins og þessa flottu eldhússkenka, og þessi bráðskondnu sumar"hús" - eins og t.d. eitt stykki kastala í Wales! Einnig hef ég alltaf verið hrifin af öllu svona og þessi gæti komið sér vel.
Annars fékk ég myndir í dag af lítill prinsessu sem fæddist sl. sunnudag og er bara alveg eins og mamma sín!! Það var notalegt í slagviðrinu að fá myndir af svona krútti, ég var ólíkt glaðari í bragði eftir það við lesturinn á frekar þvælinni tollahandbók...
...
No comments:
Post a Comment