Aatsjú!
Eyddi gærdeginum í að vera slöpp og hnerra og snýta mér. Er ennþá slöpp og er því heima í dag. Þökk sé fartölvuvæðingu þá er ég nú samt að vinna og fara yfir verkefni nemendanna frá því á föstudaginn og svara vinnutölvupósti.
Það er alltaf jafnfyndið að sjá hvernig kisurnar bregðast við þegar rútínan er sett úr skorðum, þ.e. að maður fari ekki í vinnuna á mánudagsmorgni. Það er eiginlega horft á mann ásökunaraugum....maður er þvílíkt að trufla lúrinn þeirra með því að vera heima. Ég læddist fram áðan að sækja Fréttablaðið, fékk alveg eitt ískalt gult augnaráð að launum. En ef ég þekki mitt kisuslekt rétt þá munu sumir mæta hér brátt og heimta að lúra ofan á lyklaborðinu.
...
No comments:
Post a Comment