Sunnudagsmorgunn
Við sofnuðum eldsnemma yfir sjónvarpinu í gærkvöldi, eiginlega stuttu eftir að Waterloo var valið besta Eurovisonlagið. Eiginlega kraftaverk að við sofnuðum ekki fyrr. Gríðarleg leiðindi í sjónvarpinu almennt. Við vorum ekki nógu spræk til að skella okkur í bíó né nógu fyrirhyggjusöm að taka mynd á leigu. Hins vegar máttum við alveg við hvíldinni og það var notalegt að vakna snemma í morgun og eiga heilan frídag framundan. Það er ýmislegt á dagskrá, m.a. að komast niður úr nýþvegnum þvottahaugnum sem bíður fragangs í hillur og skápa. Verkefnalistinn er langur þegar enginn tími vinnst í vikunni til að sinna heimilisverkum! Við erum nú samt að spá í að kíkja í höfuðborgina á eftir, m.a. í Gerðuberg og svo til mömmu og pabba. Sunnudagar eru oft miklu indælli en laugardagar, ekki alveg sami hraðinn á öllu og öllum.
...
No comments:
Post a Comment