Heimilisleg þreyta
Það var aksjón á Álftanesinu í gær frá morgni til kvölds. Við lögðum flísar á forstofuna (já, ég þvældist fyrir og var sérlegur aðstoðarmaður og skipuleggjari, ég er mjög góð í því hlutverki þegar að framkvæmdum kemur), ég þvoði allan þvott, bakaði Sörubotna, raðaði inn í hillurnar í tölvuherberginu og braut saman heilt fjall af fötum. Eldaði franskan sveitakjúkling og skipti um rúmföt. Við fórum þvi bara nokkuð þreytt í háttinn í gærkvöldi en það var góð þreyta. Það er alveg magnað hvað heimilisstörf geta verið róandi og afslappandi þegar þau eru stunduð í hófi.
Ég horfði á tvo þætti í gær sem ég hafði virkilega gaman af, fyrst nýjan þátt með súkkulaðifíkli sem tekur við morðrannsóknardeild hjá LAPD og líkar ekki að vera kölluð tík á þarlendu tungumáli og svo sá ég endursýnt á Sirkus danskeppnisþáttinn sem ég missi alltaf af í miðri viku. Þessi þáttur slær næstum því Idolið út. Sem sagt gott sjónvarpskvöld eftir klukkan hálftíu. Fram að þeim tíma flökkuðum við á milli þessara milljón stöðva sem allt í einu birtust í sjónvarpinu eftir að við tengdum græjurnar á ný uppi á lofti.
...
No comments:
Post a Comment