Friday, December 16, 2005

Föstudagur...

Allt í einu er vikan búin og mér finnst hún nýbyrjuð. Líklega vegna þess að ég lá heima tvo daga veik og það voru annasamir þessir tveir dagar í vinnunni sem eftir voru. Svona "hlaupandi um eins og hauslaus hæna" dagar. Dagar þegar ég gleymi að drekka nóg vatn, hringja í eiginmanninn og mæta á bókaða fundi. Þá hrúgast inn verkefnin og ég er að reyna að gera tíu hluti í einu. Og núna er ég drulluslöpp en ætla nú samt að kíkja til nágrannans á eftir í jólaglögg. Það er nefnilega komið að árlegum hittingi fjögurra fjölskyldna hér í götunni en við kynntumst ágætlega í framkvæmdunum við húsin og héldum m.a. sameiginlega upp á það þegar túnþökurnar komu á lóðirnar okkar. Ég held reyndar að meginástæðan hafi verið sú að karlarnir "bonduðu" alveg svakalega yfir smíðagræjum, nöglum og öðrum karlatólum, notuðu hvert tækifæri til að lenda á kjaftatörn í bláu vestunum og með hamarsbeltin um mittið. En það er hið besta mál því við erum ægilega glöð með nágrannana okkar. Þetta er allt hið besta fólk, með ljúft geð og gott skap og síðast en ekki síst, skemmtilegt!
...

No comments: