Áii..
Var með enn verri hálsbólgu í morgun en í gær. Og meira slöpp. Skil'etta ekki. Er því heima í dag og sé fram á nethangs. Er sem betur fer með vinnugögnin mín, því ég hef engan tíma til að vera veik. Einn kostur við að vera heima er þó að það er voðalega jólalegt hjá mér enda var allt sett á fullt í skreytingum og tiltekt fyrir síðustu helgi út af afmælisveislunni sem við héldum fyrir tengdó. Að ógleymdum þeim eðalkosti að skáparnir eru fullir af súkkulaði. Verst hvað það er vont að kyngja því.
Ég er að setja saman jólaóskalista fyrir bóndann. Það eru komnar fjórar bækur á listann só far. Síðan langar mig nú bara mest í skíðaferð og skíðagræjur en það er víst ekki í boði. Ekki nema einhver ykkar bjóði sig fram í að sjá um eitt stykki fiskvinnslu svona eina viku í febrúar?
...
No comments:
Post a Comment