Saturday, December 03, 2005

Potterinn klikkar ekki!

Við hjónin skelltum okkur á nýju Potter-myndina í gærkvöldi og höfðum gaman af. Og fyrir ævintýramyndafíkilinn var rosalega gaman að sjá sýnt úr komandi myndum, eins og Narnia - ljónið, nornin og skápurinn og King Kong. Ekki síst er ég spennt fyrir þeirri fyrrnefndu því ég las bækurnar hér á árum áður eftir C.S.Lewis og týndi mér alveg í þessum undraheimi sem krakkarnir detta inn í. Svo var líka sýnt úr Superman, lofaði einnig góðu. Reyndar sá ég auglýsingaplaköt sem vöktu mestan áhuga af öllu - ný gerð af Hroka og hleypidómum.... Austenfíkillinn varð gríðarleg spennt og mældi út myndina af hinum nýja Mr. Darcy. Það verður erfitt að feta í fótspor Colins Firth held ég. En þetta kemur í ljós. Gleðst bara yfir því að kvikmyndamógúlar telji Jane Austen ennþá góða uppsprettu fyrir bíómyndir.

En að Potter, sú mynd var bara nokkuð þétt og skemmtileg. Alls engin barnamynd lengur á ferð, enda krakkarnir orðnir eldri og lenda í alvarlegri ævintýrum. Mér fannst bókin ruglingsleg á köflum einmitt í þessari meistarakeppni og því ágætt að fá matreidda mynd úr þeim senum sem voru hvað mest ruglingslegar.

....

No comments: