Annasamur dagur
Aska hin austfirska var mjög svo önnum kafin í gær. Hún var vakin "til vinnu" hálfsjö í gærmorgun og lúrði og lék sér á skrifstofu húsbóndans fram eftir morgni. Síðan fór hún í nokkra stutta bíltúra, m.a. í dýrabúðina að kaupa ól og nagbein en tók síðan á móti gestum heima, m.a. litlum frænkum sem fannst voða gaman að leika við voffa og svo kom stóri bróðir hennar í stutta heimsókn. Það urðu miklir fagnaðarfundir og þau kúveltust um allt gólf af gleði. En þetta tók á fyrir lítinn hvolp og hún var gjörsamlega búin á því um mitt kvöld. Við vorum eiginlega ekkert síður þreytt og vorum því komin snemma í háttinn. Allir sofnuðu snemma, menn, kettir og hundur en sú litla lét þó af og til heyra í sér inn á milli hvolpablundanna en eftir klukkan eitt heyrðist ekki í henni, enda þá greinilega steinsofnuð og hún var svo aftur vakin núna áðan. Þegar ólinni var smellt á hana fór litla skottið að sveiflast til á fullu, og hún settist á mottuna í forstofunni og beið eftir því að fá að fara út. Sem sagt, rúmlega fyrsti sólarhringurinn í sveitinni liðinn og enn sem komið er hafa ekki miklir árekstrar verið og enginn köttur farinn að heiman enn sem komið er.
.....
No comments:
Post a Comment