Friday, January 06, 2006

Rok og rigning

Veðrið hefur verið með alveg eindæmum leiðinlegt sem af er nýju ári. Það var fyrst í gærdag sem aðeins rofaði til eftir að það snjóaði og frysti en nú er enn og aftur rok - eða réttara sagt stormur og enn verra veður framundan í dag og næstu daga. Aska þverneitaði að fara í vinnuna í morgun, settist bara á forstofumottuna og vildi ekki einu sinni fara út að pissa. Henni er illa við svona leiðindaveður og vill auðsjánlega pissa bara inni. Skiljanlega! En hún var nú samt tekin í fangið og farið með hana út í bíl. Við vorum tvær einar heima í gærkvöldi ásamt kisunum auðvitað sem sváfu út um allt hús. Eftir að hafa leikið sér og borðað og farið út að pissa og það allt saman varð sú litla ansi vælin eitthvað og óróleg. Endaði fyrir framan sófann í stofunni þar sem hún reyndi nokkrum sinnum að komast uppá en tókst ekki og skældi hún í hvert sinn sem hún pompaði niður á afturendann. Eitthvað sem hún hefur aldrei gert áður og hefur aldrei haft neinn áhuga á að fara upp í sófa enda það almennt ekki í boði. Þá teygði hún sig og þá sá ég hverju sætti. Á sófanum lá nefnilega bolur og gallabuxur af húsbóndanum - sem eins og oft áður hafði verið að skipta um föt áður en hann fór að jeppastússast í einhverjum bílskúr - og Aska var að reyna að toga fötin til sín. Ég lyfti henni upp í sófann og hún tók bolinn einhvern vegin undir sig, boraði trýninu í efnið og saug aðra ermina og lagðist með þetta ofaná gallabuxurnar, alsæl. Og varð róleg sem lamb og steinsofnaði. Það er auðséð hver er í fyrsta sæti... :o)
...

No comments: