Monday, April 24, 2006

Það er komið sumar samkvæmt tímatalinu en það var bara allt hvítt í morgun. Það er nú reyndar allt farið að mestu núna, enda skín sólin alltaf á Álftanesinu. :o) Annars fóru lok vetrar alveg fyrir ofan garð og neðan hjá mér, enda var ég ekki að velta mér mikið upp úr veðrinu þegar maður liggur til skiptis í rúminu heima hjá sér eða á Kvennadeild LSH inn á milli stefnumóta við Gustavsberg. Jamm og jæja. Það fer vonandi að sjá fyrir endann á þessari ógleði og endalausum uppköstum. En þegar maður gengur með "double trouble" eins og einhver sagði, þá er þetta víst stundum enn verra en venjuleg meðgönguógleði. ;o) Ég hef ornað mér síðustu daga við hugsanir um sumarbústaðaferðir og útilegur og letilegar setur í sumarsólinni og ætla bara rétt að vona að sumarið verði ekki of rigningarsamt hérna á suðvesturhorninu fyrst að ekki verður farið á suðlægar slóðir. Hálfgerð synd þegar maður er 10 kílóum léttari að geta ekki spókað sig í bikini, en ég fer bara í staðinn í bumbulínusund í Hrafnistulauginni og trítla um laugina að gera svona ljúfar og léttar æfingar eins og gamalmenni. Ægilega notalegt. Skrítið hvað manni líður alltaf vel í vatni, jafnvel þótt maður hafi ekki getað lyft höfði frá kodda vegna vanlíðan allan daginn, um leið og maður er komin ofan í passlega heita laugina þá bara hverfur öll ógleðin. Ég vildi ég gæti búið ofan í svona laug alla daga.
....

No comments: