Eftir hlýindi helgarinnar sér maður loksins árangurinn, grasið er farið að grænka og manni finnst einhvern veginn að nú sé ekki svo langt í sumarið sjálft. Við gerðum víðreist um höfuðborgina þessa frídaga, fórum í afmæli til Gulla litla upprennandi jeppahöfðingja og stóðum þar á beit í hlaðborði sem Guðrún aka Mamma Reykur töfraði fram. Ég var svo södd að ég þurfti ekkert frekar þann dag og rotaðist fyrir framan sjónvarpið klukkan níu um kvöldið. Á sunnudeginum pöntuðum við okkur nýtt fellihýsi, rétt náðum því áður en þau seldust öll upp. Við sem héldum að allir væru komnir á hjólhýsi í sumar! Við vorum að stækka við okkur og hitt er sem sagt til sölu ef einhver hefur áhuga (Coleman Taos, árg. 2001). Síðan kíktum við í Ikea og keyptum kommóðu og skenk. Þetta ætluðum við að gera fyrir 2 mánuðum en samband mitt við Gustavsberg kom alltaf í veg fyrir þennan verslunarleiðangur. Dagurinn endaði svo hjá Huldu systur í sólbaði í Fossvoginum, fengum þar bakkelsi og síðar kvöldmat. Annað kvöldið í röð lagðist ég alsæl á koddann eftir að hafa verið vel nærð og ógleðin í lágmarki. Í gær héldu svo heimsóknir og átið áfram. Við kíktum til mömmu og pabba og þar fékk ég lummur! Namminamm. Síðan renndum við í Hólabergið til tengdó og þar var bara múgur og margmenni í 1. maí kaffi. Og veitingarnar eftir því. Síðan fórum við bara heim í kvöldsólina á Álftanesinu þar sem við grilluðum og ég datt í kókið í fyrsta sinn á þessari meðgöngu og mikið rosalega svakalega var það gott að geta loksins loksins þambað smá kók. Sem sagt þessa helgi borðaði ég meira en síðustu 3 mánuði samanlagt. Spurning hvert ég eigi að bjóða mér í kaffimeðlæti í dag?
...
No comments:
Post a Comment