Sunday, August 20, 2006

Siv og Magni

Það hefur nú ekki margt vakið áhuga minn undanfarnar vikur annað en litlu gimsteinarnir mínir á vökudeildinni en þó hefur tvennt stytt mér stundir þegar tími hefur gefist til, í raun alveg síðan ég lá eins og skata í margar vikur á meðgöngudeildinni í sumar og kynntist alveg frábærri manneskju sem fékk mig meira að segja til að prjóna.... Það er hinn hæfileikaríki Magni og vera hans í hinum æsispennandi (ó)raunveruleikaþætti Rockstar og svo væringarnar innan Framsóknarflokksins. Þökk sé herbergisfélaga mínum á deild 22B þá fékk ég smá innsýn í lífið og tilveruna hjá framsóknarmönnum og áttaði mig á því að það er tvennt ólíkt - Framsókn a la Halldór&Co og svo hinir. Og komst að því að ég fílaði "hina" betur og að framsóknarfólk væru bara ágætisfólk þrátt fyrir að ég hefði lagt fæð á þennan flokk vegna Kárahnjúka. Ég vonaði því og krosslagði fingur fyrir Siv í formannskjörinu, enda dugnaðarforkur þar á ferð sem hefur svo skemmtileg áhugamál. Ég hef nefnilega þá kenningu að áhugamálin segi oft heilmikið um viðkomandi manneskju. Og þegar hún hefur gaman af því að ferðast um hálendið, diggar flott hjól og öfluga jeppa, djammar með jeppamönnum og konum og fílar Toyota Tacoma þá hlýtur að vera eitthvað varið í hana. Reyndar hefur Siv það á samviskunni að hafa verið einum of innvikluð í stóriðjustefnu ríkisstjórnarinnar og ber m.a. ábyrgð á því að Laugarvalladalur er orðinn að stoppistöð og afslappelsismiðstöð fyrir múg og margmenni og ekki lengur hægt að fara allsber í nátturulega sturtu með örfáar flugur sem áhorfendur. En ég ætla hinsvegar að beina óánægju minni frekar að henni Álgerði. Siv fær nebblega fleiri plúsa í kladdann en hún. En flokkurinn svo sem gerði út af við þann fjarlæga möguleika að ég myndi kjósa hann með kjörinu sínu í gær. Verst að það eru fáir aðrir möguleikar eftir... Maður þarf greinilega að leggjast undir feld í vetur.

En aftur að hinu áhugamáli sumarsins - Rockstar. Ég nefnilega datt um svona áhangendasíðu þar sem ýmislegt hefur komið í ljós. Eins og t.d. að "performance" þættirnir eru teknir upp á sunnudögum og maður fær fréttir af gengi allra í gegnum svona "spoilers" á spjallþráðum. Og að Magni er alltaf talinn með topp fimm söngvurunum og er kallaður "Magnipedia" þar sem hann er botnlaus fróðleiksbrunnur um tónlist eins og Wikipedia gagnagrunnurinn á netinu. Og að Zayra og Jason Metallica eru líklegt par... Jamm. Linkurinn á þessa fróðleikssíðu er http://www.rockband.com og farið þaðan í forumið.

Og að lokum, þið sem hafið áhuga á að fylgjast með tvibbalingunum, sendið mér póst.

Tata

1 comment:

Silja Bára said...

velkomin aftur í þennan bloggheim:) Komst ekki úr sporunum á sunnudag en þarf að fara að kíkja á þig!!!

Mikið rétt með frammarana, en "við" sem ekki kjósum þá getum eflaust hrósað happi með þetta kjör!