Sér grefur gröf...
Hún vinkona mín hefur staðið í ströngu undanfarið og nú lítur út fyrir það að félagar hennar hafi gert út um þann möguleika að hún komist á þing. Finnst einhvern veginn eins og þessi flokkur reyni það af öllum mætti að minnka fylgi sitt sem mest. Það virðist allavega vera þannig í augum leikmanns eins og mín. Skil t.d. ekki til hvers verið er að fara út í prófkjör með tilheyrandi umstangi og kostnaði en gera svo eitthvað allt annað, þ.e. setja saman lista með fólki sem gaf ekkert kost á sér í prófkjörinu. Myndi skilja það ef kjörnefndir vildu jafna hlutföll karla og kvenna (ekki hefði nú veitt af í mörgum prófkjörunum undanfarna mánuði), en það var ekki ástæðan í þessu tilfelli heldur þúfnapólitík eins og hún "systir" mín kallaði það. Er líka sammála henni að það sé löngu úrelt miðað við þessi stóru kjördæmi sem við höfum í dag. En það eru svo margir fastir í þessari leiðinda hreppapólitík ennþá. Í rauninni svolítið óþolandi að það sé verið að gefa sér að það skipti manni ekkert máli hvað sé að gerast á þúfunum í næstu sveitum og byggðarlögum.
No comments:
Post a Comment