Monday, February 12, 2007

Peningaeyðsla

Hvað ætli þetta blessaða Baugsmál sé búið að kosta þjóðina? Hversu margar milljónir eru búnar að fara til einskins í þessar nornaveiðar? Væri ekki nær að nota þetta skattfé í að tryggja velferð barna á Íslandi? Ekki sýnist mér veita af. Ég held að það sé bara nokkuð áríðandi að ganga úr skugga um að börn sem send eru á ýmis heimili og athvörf í dag séu örugg, vel haldin og ánægð, en búi ekki við harðræði, misnotkun og barsmíðar. Yfirvöld ættu að skammast sín fyrir það hvernig forgangsröðunin er. Jafnvel lambakjöt og jarðgöng fyrir 50 hræður þykja merkilegri en aðbúnaður fátækra barna þegar kemur að fjárlögum. Oj, ég er alveg miður mín eftir enn einn Kastljósþáttinn. Ætli mig dreymi ekki bara aftur útfarir og blóðugar sósur í nótt.

No comments: