Saturday, March 24, 2007

Það styttist óðum í páskana og afmælið mitt. Í fyrra var þetta fremur dapurlegt að því leyti að ég gat ekki borðað súkkulaði (frekar en nokkuð annað) og afmælisdeginum eyddi ég á dagönn meðgöngudeildarinnar með næringu í æð. Minnugur þessa og vitandi hversu heitt og innilega ég elska páskaegg og hve ofboðslega sár ég var í fyrra að geta ekki borðað slíkt kom eiginmaðurinn heim í dag með óvænta gjöf handa mér. Risaegg frá Nóa. Held að það sé heil 1500 grömm. Já, ég held ég borði páskaegg þessa páskana....

2 comments:

Silja Bára said...

namminamm... er þetta ekki bara upphitunarpáskaegg? þú þarft auðvitað að tryggja að krílin fái hvort sitt risaeggið og "hjálpa" þeim svo að borða þau...

Anonymous said...

Þú átt þetta svoooooooo skilið.