Saturday, January 31, 2004

Það er eins gott...

...að veðrið verði eins gott á morgun og svo aftur um næstu helgi. Því þá ætla ég á fjöll.... það er erfitt að vera að vinna í dag...uppi á 7. hæð með útsýni yfir allt. Ef þið vitið það ekki þá er heiður himinn og fullkomið vetrarveður. Jújú, skítkalt, en þá bara klæðir maður sig vel. Á morgun ætla ég að kippa með mér skíðunum og fara í smá jöklaskíðaleik. Drekka heitt kakó og borða baguette-samlokur, helst uppi á jökli - annars Skjaldbreið. Skíða svo niður. Þeysa aftur upp á jeppanum og njóta þess að sjá í allar áttir.
Næstu helgi erum við Flugsveitarfólk að fara í Hvanngil og ætlum yfir Mýrdalsjökul, en ekki upp Fljótshlíðina. Ekki segja mömmu. Hún bara hugsar "Katla!" Og hefur áhyggjur. Hún er líklega ekki enn búin að ná sér síðan um árið þegar hún hringdi til að vara mig við Heklugosi og vildi vita hvar ég væri stödd. "ég var að keyra framhjá Heklu, af hverju viltu vita það?" Þá átti fjallskömmin sem sagt að gjósa eftir kortér... :o)
..

Thursday, January 29, 2004

Veðrið úti núna...

...er að ganga frá mér. Ef ég fengi að ráð þá myndi ég bruna heim, pakka dótinu, skíðunum og karlinum í jeppann, koma við í gúrmei-búð og ríkinu og svo bara beint á fjöll. Fara á Hveravelli yfir jökul og láta líða úr mér í lauginni eftir góðan mat og gott hvítvín. Láta ekki sjá mig í byggð fyrr en á mánudaginn. Þetta er sko veður til að þeysa í gegnum púðursnjóinn....ohhh.....
..
Enn og aftur...

..björguðu nornirnar deginum. Þær eiga afmæli í dag og eru að rifja upp "best of" bloggin sín. Ég er enn hlæjandi. Veit ekki hvað það segir um mig. Get bara ekki að því gert. Húmorinn þeirra er bara snilld. Bíð spennt eftir "part tú".
..

Wednesday, January 28, 2004

Jóga...

...er æði. Og að geta farið í jógatíma í sama húsi og maður vinnur í er enn betra. Svo fer maður upp í mötuneytið og fær sér að gott að borða. Enda sit ég núna alsæl með lífið og tilveruna fyrir framan tölvuskjáinn eftir góðan jógatíma og flotta máltíð. Reyndar fannst mér nú alveg yndislegt að fara í jóga úti á Álftanesi á kvöldin, heyra í sjófuglunum og briminu og vera 2 mínútur á leiðinni heim. En því miður hef ég ekki getað komist núna eftir áramót, það hittir svo illa á. Sá jógakennari er reyndar alveg frábær, þannig að ef þið eruð á Hafnarfjarðarsvæðinu og nágrenni þá mæli ég með henni. Ég fer hiklaust til hennar aftur þegar ég get. En þangað til skokka ég niður á 4. hæð hérna í vinnunni og fer í Fjallið og Hálfmánann og anda Kabbalabati-öndun og slaka svo á í Sawasana.... Gerist ekki betra. :o)
..

Tuesday, January 27, 2004

Hún Nanna nefnir það að það séu flestallir frekar litlausir í klæðnaði þessa dagana. Ég er hjartanlega sammála henni. En ég ákvað að gera smá uppreisn og mætti í eldrauðu peysunni við svörtu dragtina í vinnuna í morgun. Hitti litlu systur í hádeginu (og gaf henni afmælisgjöfina – kom í ljós að ég keypti gjöf í fyrra handa henni úr sömu búð...ég er svo frumleg stundum) og hún var bara eiginlega eins klædd. Í svartri dragt og í rauðum bol. Ætli það sé einkennisklæðnaður löffana í dag? En ég er handviss um að rauði liturinn varð til þess að ég fann uppskrift til að elda eftir í kvöld. Meira að segja eitthvað nýtt sem ég hef ekki prófað áður, fylltar kjúklingabringur á ítalska vísu. Og búin að skrifa innkaupalista fyrir vikuna og ætla að storma í bestu búð höfuðborgarsvæðisins eftir vinnu.
Aldrei að vanmeta mátt lita í umhverfinu.... :o)
..
Skemmtileg síða.

Eftirtektarsamir lesendur mínir hafa eflaust rekið augun í að ég uppfærði aðeins tengingarnar á aðrar síður um daginn. Mér var nefnilega bent á þessar og ég á ekki orð yfir það hversu brjálæðislegir snillingar þær eru. Tær snilld sem vellur uppúr þeim. Þær bjarga mér frá innlögn á Kleppi suma daga. “....fólk með greindarvisitölu á við stofuhita....” Muuhaaahahahahahahahahahahahahahahahaha.....
..

Monday, January 26, 2004

Dóh!!!

Var búin að skrifa þetta einu sinni en Blogger át það. Af einskærri þrjósku ætla ég að skrifa þetta aftur. Kókin var búin. Ekkert súkkulaði til. Endaði á því að fá mér léttjarðarberjadrykkjarjógúrt. Gerði EKKERT fyrir mig. Nada. Nothing. Núll og nix.

Eitt kætti mig þó í Kringlunni áðan... Heyrði á tal nokkurra kvenna þar sem ein sagði að enska töluð í Ástralíu væri ein fallegasta útgáfan af talaðri ensku sem hún hefði heyrt. Og hinar allar samsinntu sem ein.
Það var einmitt það, já.

..
Alveg brjál....

Ég er í hálftrylltu skapi. Eins og dagurinn byrjaði vel. Alveg úthvíld eftir algjöra letihelgi. Hlóð batteríin eftir annasama viku sem endaði með stæl á Hótel Sögu á föstudagskvöldið (maturinn í Grillinu er alveg fantagóður). Hékk sem sagt á náttfötunum fram eftir degi, dundaði við tiltekt og horfði á Ben Húr á TCM. Mætti því fílefld til vinnu í morgun. Sá fram á að ég næði ekki að fara í bæði, jóga og svo þýsku. Ákvað því að sleppa jóganu, fara í Kringluna (sem ég hef ekki stigið fæti inn fyrir síðan fyrir jól) og kaupa afmælisgjöf handa litlu systur og skoða aðeins föt því ég er gjörsamlega fatalaus fyrir vinnuna. Fá mér að borða á hlaupum og bruna svo í þýsku. Þannig að ég kíkti í Kringluna. Varð grautfúl því að í fyrsta lagi er ekki að fá nein almennileg föt þarna. Í öðru lagi enga almennilega skó. Og í þriðja lagi eru öll föt sniðin á einhverja ljósastaura og allir skór með svona drápstám. Ég var því komin í frekar fúlt skap á leiðinni vestur í Háskóla. Mætti þar á réttum tíma og enginn kennari og engir nemendur. Ég beið, fór og kannaði hvort kennslan hefði verið færð til eða felld niður en ekkert skráð. Fór þá bara aftur í vinnuna. Ekkert jóga, enginn matur, engin þýska. Engin föt. Engir skór. Er að hugsa um að smella mér á eitt súkkulaði og kalda kók. Heilsuátak hvað...
:o(
..

Sunday, January 18, 2004

Þvílík helgi....

...ég er gjörsamlega sigruð af kvefpestinni. Hef verið alveg frá alla helgina. Hefur nú samt mikið gengið á, smiðirnir á fullu í stiganum í allan gærdag og mættu í morgun aftur. Ætli ég geti ekki tölt upp á efri hæðina seinna í dag? Tilhugsunin ein léttir lund mína þrátt fyrir nefstíflu og hausverk. Svo er ég að verða búin með amerísku kvefmeðalabirgðirnar. Þetta ástand má sem sagt ekki vara mikið lengur. Hef heldur ekki tíma í veikindi, ætlaði að vinna alla helgina. Það hefur lítið orðið úr því. Mín umfram orka fer í að þrífa sag og ryk og gefa duglegum vinum og eiginmanni kaffibrauð. Það er ekkert smákraftur í strákunum, smíða og saga út í eitt og áður en maður veit af er komin mynd á stigann. Ég er ekki lítið glöð.....

Þau gleðitíðindi bárust okkur á fimmtudaginn að vinir okkar hafi eignast litla stelpu daginn áður. Svo á önnur vinkona mín von á sér einnig á næstu dögum. Ég fæ því að gera það sem mér þykir sko alls ekki leiðinlegt...velja svona ponsuföt á lítil krútt. :o) En eins gott að vera búin að ná sér af pestum áður en maður fer að kjá framan í nýfædd kríli!

Jæja, ég ætla að fara að brjóta saman þvott. Það er "nebblega" hægt að gera uppi í rúmi. Og horfa á sjónvarpið um leið. :o)

p.s. Hunskist svo að láta vita af ykkur í kommentakerfinu. Hvernig á ég að vita að einhver les þetta nema þið látið vita af ykkur. Svo skammiði mig fyrir að blogga ekki nógu oft. Iss....
..

Friday, January 16, 2004

Þolraunir...

....Ef það er eitthvað sem ég þoli ekki þá er kvef þar efst á lista. Svona týpískt kvef með hálsbólgu, slappleika og nefrennsli. Þess vegna geng ég um með lotningarsvip meðfram hillununum með kvefdópinu í amerísku matvörubúðunum. Svo strýk ég léttilega yfir pakkningarnar þar til augun eru fönguð af dýrðlegum loforðum um betra líf með kvefi. Þar er nefnilega að finna svona lyf sem láta manni bara líða þokkalega þegar maður er gjörsigraður af hori. Svo kaupi ég nokkra pakka og tek með mér heim. Fel þetta inn á milli nærfatanna frá Victoriu Secret og ilmkertanna frá Pottery Barn ásamt öðrum varningi sem ég ágirnist í amerískum verslanakeðjum á borg við Target, Wal-Mart og Pier1. Búin að rífa alla verðmiða af. Treð kvefmeðulunum oní sokkapakka með 20 sokkum sem kostuðu tvo dollara eða þ.u.l. Svo líður og bíður og ég fæ svo sem ekkert alvarlegt kvef. Hef eiginlega ekki fengið slíkt síðan ágætur vinur minn smyglaði mér í hálskirtlatöku þrátt fyrir að heimilislæknirinn teldi ekkert að þessum aðskotahlutum í hálsinum á mér. Og svo dreifi ég þessu til ættingja og vina. Er mjög vinsæl fyrir vikið. Lauma að þeim nokkrum "Tylenol Flu" og "Vicks" hóstamixtúru og svo kemur að því að ég þurfi þetta sjálf. Þvílík unun. Gat farið í matarboð í gærkvöldi án þess að deyja fyrr en 4 tímum eftir að ég tók inn töflurnar. Gat hlegið og borðað án þess að þurfa að snýta mér á 5 mínútna fresti. Kaninn veit alveg hvað hann er að gera. Þessar kveftöflur lækna ekkert, þær bara láta manni líða betur á meðan maður gengur í gegnum horpest frá helvíti. Hef ekki skilið af hverju íslensk lyfjafyrirtæki hafa ekki fundið upp eitthvað svipað. Nezeril hvað!
..

Thursday, January 15, 2004

Oj bara.....

....Við fórum í sund systurnar í fyrradag í hádeginu. Svo sem ekkert merkilegt (þrátt fyrir að við syntum 400 m og vorum ógurlega stoltar af okkur). Nema hvað að við fengum báðar kvef og hálsbólgu og sér ekki fyrir endann á því. Ég sit hérna í vinnunni með hausverk og hálsbólgu og snýti mér á 5 mínútna fresti. Við fórum í Laugardalslaugina og laugin og búningsklefarnir voru vægast sagt ógeðslegir. Allt grútskítugt og að drabbast niður. Og laugin sjálf var ekkert voðalega geðsleg. Kannski þess vegna sem við erum svona slappar, allt morandi í sýklum? Reyndar hallast ég nú að því að við höfum bara ofkælst. En samt sem áður, það er hneisa hversu skítugt allt var þarna, það var t.d. þolraun að fara þarna á salernið. Ég fer oft í sund í lauginni í Garðabæ, þar er allt annar þrifastaðall greinilega. Allt svo hreint og bjart og fínt, þrátt fyrir að laugin sé komin til ára sinna.
Jamm, þetta var nöldur dagsins. *atsjú!*
..

Monday, January 12, 2004

og af því að ég er byrjuð...

...þá er bara best að halda áfram. Bóndinn er að elda og kakan er að kólna. Ég ætlaði nefnilega að deila með ykkur lesefninu á náttborðinu. Af því að þar er svo móðins að segja alltaf frá því hvað maður er að lesa. Nú, í fyrsta lagi er það nú Biblían eina sanna. Ástæðan er fyrst og fremst sú að undanfarið hef ég verið að lesa tvær bækur sem vitna mikið í þessa bók allra bóka. "DaVinci-lykillinn" og svo "Left behind". Flestir þekkja til þeirrar fyrri en sú síðari er ekkert síður spennandi og tilheyrir seríu sem systur minar duttu í og bentu mér á að lesa. Ég veit reyndar ekki hvort næstu bækur eru eins spennandi, en það kemur þá bara í ljós. Næst á dagskrá er bók sem ég fékk í jólagjöf frá vinkonu minni en það er "Sagan af Pí". Margir hafa mælt með þeirri bók við mig og því ánægjulegt að fá hana að gjöf. Svo er ég með nokkrar svona bækur sem rata alltaf á náttborðið hjá mér af og til, "Láttu þér líða vel", "Yoga" og "White wines" (fór að sofa heltekin af hvítvínsþrá..). Svo hef ég verið að fletta í gegnum "Úlfar og fiskarnir". Það er mjög róandi að lesa matreiðslubækur áður en maður fer að sofa þó að mér þyki ekkert leiðinlegt að detta oní góða raðmorðingjasögu.. :o) Sef ekkert verr. Aðrar jólabækur hef ég ekki lesið en kemst brátt í eru "Bettý" hans Arnaldar svo og ein sem heitir "Friðþæging" og á að vera góð. Ef ég fæ svona einn og einn "lestrardag", þ.e. ég get hangið í náttfötunum að lesa mestanpart dagsins, þá er ég til friðs í nokkra daga. Jafnvel vikur. Það jafnast fátt á við svoleiðis dag.
..
Jæja, mínir "Hörðustu" aðdáendur...

...hafa krafið mig um bloggfærslu. Ég þori ekki öðru en að verða við þeim kröfum. Annars var ég búin að spekúlera aðeins í því í dag hvað ég ætlaði nú að tjá mig um í blogginu. Það er svo sem ýmislegt. Ég gæti t.d. röflað aðeins um Jón Ásgeir og Davíð. Já, eða Hannes og aðferðafræðina hans. je ræt... nei, vitiði, ég er alveg búin að fá nóg. Hef því snúið mér að kökubakstri. jamm. Er að baka köku og vil monta mig af því að fíni ofninn minn er bara 25 mín. að baka þessa köku en samkvæmt uppskriftinni á hún að vera 36-40 mín. í ofninum. Þið hváið? Er það af því að kakan mín er svona fljót að bakast eða er það af því að ég er að baka klukkan hálfsex á mánudegi? Núnú, það síðarnefnda. Haldiði að ég baki aldrei? Ég sem fékk þennan fína matreiðslubókastand í jólagjöf og hef ekki getað náð af mér brosinu síðan. Svo er komin ný stöð á Breiðbandið. BBCFood. Bara matreiðsluþættir allan daginn. Ég sem ætlaði að segja upp Breiðbandinu (ásamt Mogganum notabene) þessa útmánuði til að spara aurinn. Ég sé mig í anda segja upp áskriftinni núna. Bóndinn mun ekki tala við mig framar. Hann horfir ekki á annað. Ég horfi á hann eins stórum augum og ég get og halla undir flatt til að fá hann til að skipta yfir á Skjá Einn. Ónei. Jamie, Nigella og Ken eða hvað sem þeir allir heita þessir kokkar, skulu fá að tala áfram um hversu febjúlös og vonderfúl allur maturinn er sem þeir eru endalaust að smakka á. Svo er þarna ein nafna mín. Soldið skemmtilega skrítin með svaðalega eyrnalokka.

Já, af hverju ég er að baka já. Það er nefnilega runnin upp stór dagur. Smiðirnir, sem ég hef beðið eftir síðan í fyrra ætla að koma á eftir og mæla fyrir stiganum. Stiginn upp á milliloftið. Loksins. þetta kannski þýðir að ég fæ efri hæðina í notkun fyrir næstu jól. Glæsilegt. (ég er farin að gera litlar kröfur eins og þið sjáið). Og af því að þeir eru líka vinir mínir, þá fá þeir köku. Þá vilja þeir kannski koma aftur. Beggi ætlar nefnilega að lofa þeim gúrmei-máltíð líka. Okkur skal takast ætlunarverk okkar. Leiðin að sjónvarpsholinu á efri hæðinni er í gegnum maga smiðsins. Jamm.
..

Wednesday, January 07, 2004

Áramótaheitin...

....er fljót að falla í gleymsku. Nú er komin "næsta vika" og af þessum 3 atriðum á listanum frá 2. jan. þá hef ég staðið við:

1. Búin að finna staðinn en á eftir að fara og kaupa kort.
2. Hef ekki farið einu sinni út að ganga síðan 2. janúar sl.
3. Labbaði upp í fyrsta sinn í morgun. Dó á 5. hæð.

...og svo var dreift súkkulaði til okkar allra starfsmannanna í gærkvöldi. Getiði tvisvar hversu fljót ég var með minn mola....

Annars er ég nú að reyna að vera dugleg. Tók m.a. með mér gulrætur í morgun til að narta þegar súkkulaðiþörfin kemur yfir mig. Og er bara búin að drekka 2 kaffibolla, einn í morgun og einn áðan eftir matinn. Svo er að byrja átak hérna í vinnunni, það kemur einhver og fitumælir allt starfsfólkið ef það vill, svo ætla allir að vera duglegir að hreyfa sig og borða hollan mat og síðan er árangurinn mældu í lok mars held ég. Og veitt verðlaun. Þótt ég geri mér engar vonir um sigur þá veitir þetta ákveðið aðhald....vona ég! :o) Þessi kíló sem heimsóttu mig yfir jólin mega alveg fara að koma sér burt aftur....
..

p.s. búin að fara og sjá Myndina. Hún er æði. Væri alveg til í að sjá hana aftur...
..

Friday, January 02, 2004

Þá er komið nýtt ár...


...og ég þarf að muna að skrifa '04 í stað '03! Meira ætla ég nú ekki að leggja á mig í bili á nýju ári. En svona til að minna sjálfa mig á síðari tíma fyrirheit (lesist: í næstu viku) kemur hérna smá listi:

1. Að finna nýja stað til að stunda jóga á í grennd við nýja vinnustaðinn.
2. Að fara út að ganga eigi sjaldnar en 3svar í viku á kvöldin.
3. Að labba a.m.k. einu sinni á dag upp stigann í vinnuna, þ.e. alla leið upp á 7. hæð!

Önnur átök og fyrirheit verða að bíða síðari tíma þegar sólargangurinn lengist og peningaveskið fitnar örlítið meir.

..

Tuesday, December 30, 2003

Jaaháá......




Áhugavert...
..

Monday, December 29, 2003

Södd, sæl og kílói þyngri....

Þessir hátíðisdagar hafa verið mjög notalegir. Akkúrat það sem ég þurfti. Friður og ró, myrkur og kertaljós og góður matur. Suma morgna vaknaði ég rúmlega átta, fór fram og hellti mér upp á kaffi eða sótti ískalt jólaöl og skreið aftur uppí og fór að lesa. Ég er að tala um fullkomna sælu. Ekki síst ef eitt og eitt Lindor súkkulaði fékk að fljóta með. Og núna, þegar ég hefði átt að vera að vinna er ég nú samt að vinna en bara heima hjá mér. Lofa ber nútímatækni sem gefur þann möguleika að tengjast vinnunetinu í gegnum fartölvuna heima hjá sér! Sérstaklega þegar maður er kvefaður og slappur og með eyrnabólgu! Og úti er bara hríð.

Ég var sérlega ánægð með jólagjafirnar mínar þetta árið. Bóndinn klikkaði ekki frekar en vanalega í þessari deildinni og systur og foreldrar gáfu okkur snilldargjafir, sem og vinkonur mínar. Fékk m.a. matreiðslubókarstandinn úr Pipar og salt sem mig hefur langað í lengi! Og mjúka flíspeysan frá Ameríku er svo mjúk að ég vildi helst aldrei fara úr henni. Andardúnssængurnar frá mömmu og pabba virðast gífurlega notalegar og ekki seinna að vænna að fá nýjar sængur þegar þær gömlu passa varla lengur í sængurverin, þær rýrna víst svona í þvotti. Svo á ég eftir að lesa eina bók (Söguna af Pí) sem hefur vakið mikla lukku innan fjöslyldunnar, allir búnir að lesa hana þar og ég bíð spennt eftir að byrja á henni líka.

Og enn er hátíð framundan. Og þá er ég ekki bara að tala um gamlárskvöld og nýársdag....heldur líka það sem ég hef beðið eftir lengi, lengi... Hann Aragorn er nefnilega mættur á svæðið á ný. Við hjónin erum búin að vera í stífu prógrammi sl. daga. Horfðum á The Fellowship á annan í jólum og svo Two Towers í fyrradag. Aðeins að rifja upp söguna. Verst að ég er ekki með bókina sjálfa, á hana ekki. Fékk hana bara lánaða á sínum tíma. Þetta verður hátíðleg stund að fara og sjá síðustu myndina í þessari snilldartrílógíu. Jákvæð kvikmyndagagnrýni spillir ekki fyrir. Mér líður eins og ég eigi eftir að opna einn stærsta jólapakkann! Það er bara spurning hvenær við komumst. Vonandi sem fyrst!!!

..

Wednesday, December 17, 2003

Happasending!

Við fengum lítinn pakka inn um lúguna í gær, merktum tryggingarfélaginu okkar. Í ljós kom svona lítill pakki sem líktist mikið þessum týpísku íslensku lyfjaumbúðum og innihélt hann rafhlöðu fyrir reykskynjara. Ég spurði Begga hvort við þyrftum á þessu að halda, þ.e. hvort það þyrfti eitthvað að endurnýja rafhlöðu í öðrum hvorum reykskynjaranum okkar og hann var fljótur til svars, nei,nei, í góðu lagi með okkar reykskynjara! Þannig að ég setti þetta upp í hillu. Síðan datt Begga í hug að tékka nú á þessum sem er við eldhúsið og kom þá í ljós að rafhlaðan var ekki í sambandi. "Aahh..." hugsuðum við bæði. "Líklega hefur skynjarinn farið af stað í einhverri eldhúsbrælunni og við kippt rafhlöðunni úr sambandi en svo gleymt að laga hana aftur". Mér fannst gjöfin frá tryggingunum strax vera búin að koma að góðum notum, við höfðum allavega gert reykskynjarann virkan á ný!
Stuttu síðar heyrðist píp. Og svo aftur nokkrum mínútum síðar. Þá mundi ég af hverju reykskynjarinn var ekki í sambandi. Rafhlaðan hafði klárast fyrir löngu (svo löngu að ég man það ekki....) og við alltaf á leiðinni að kaupa nýja. Þvílíkur slóðaskapur. Það hefði getað brunnið ofan af okkur í millitíðinni. Takk kæra tryggingarfélag, þrátt fyrir gífurlegt okrið að öðru leyti þá komuð þið að góðum notum þarna!
..

Friday, December 12, 2003

Ekki svo slæmt!

Ég er alveg dottin oní svona próf......alveg týpískt - enda er ég að reyna að lesa undir þýskupróf... :o)


According to the "What Weather Phenomenon am I?" quiz:




My forecast says you'll check it out! Click here!



..

Wednesday, December 10, 2003

Ja hérna hér....




..