Sunday, January 30, 2005

Janúar brátt á enda...

..og þessi mánuður hefur einhvern veginn flogið fram hjá mér. Þegar maður er á haus á öllum vígstöðvum þá er eiginlega ekki við öðru að búast! Janúar hefur verið undirlagður þrem "verkefnum". Fyrst auðvitað vinnan, og mikið að gera - jafnvel meira en oft áður og er þá mikið sagt, síðan er það hin vinnan - stofnun fyrirtækisins, skjalavinnsla, fjármála og bankastúss, starfsmannahald og auðvitað almennar og sífelldar áhyggjur yfir því að þetta gangi nú. Og svo að lokum náði félagsstarfið í F4x4 ákveðnum hápunkti þessar síðustu vikur með tilheyrandi auglýsingaöflun, prófarkalestri og ritsmíðum, forvinnu, hönnun og fundum. En það afkvæmi rataði í prentsmiðju sl. föstudag og nú get ég ekkert gert annað en að bíða þess dags þegar Fréttablaðið pompar inn um lúguna með blaðið vonandi innanklæða. Úff... En þá þarf ég reyndar að koma því í dreifingu í dreifbýlinu. Jeppafólk í afkimum landsins á auðvitað rétt á að frá sitt mánaðarlega fréttabréf þótt febrúarútgáfan verði með öðrum hætti en venjulega. En hér sit ég á sunnudagsmorgni með listann af verkefnum til þess að klára en finnst það bara vera pís of keik því nú á ég bara eftir þessi tvö fyrstnefndu verkefni eftir, sem munu fylgja mér liklega næstu ár. Þá er bara eins gott að venjast því og skipuleggja sig bara betur! En hvort ég taki að mér svona félagsstörf aftur verður að koma í ljós. Svonalagað tekur nefnilega tíma frá fjölskyldu og vinum og það er alveg kominn tími á heimsóknir og smábarnaknús!
...

Saturday, January 29, 2005

Horfði með öðru auganu á Idolið í dag, það er sem betur fer endursýnt alltaf á laugardögum. Sá reyndar ekki úrslitin en hafði lesið á mbl.is að hún Margrét Lára datt út. Ég var einmitt að velta því fyrir mér af hverju krökkunum gekk svona illa að syngja Sálarlögin. Og dómurunum þótti ekki mikið til koma og Stebba Hilmars þvílíkt hampað þarna eins og einhverjum snillingi í sönglistinni. Ég er bara ekki sammála, jú lögin eru öll í voða erfiðri tóntegund en Stebbi Hilmars hefur alltaf sungið þau eins og hann væri með vel herptar rasskinnar. Krakkarnir hefðu kannski frekar átt að velja ballöður Sálarinnar, enda finnst mér þau lög vera langbest. En ég bara þoli ekki þessi Hei kanínu lög þeirra Sálarmanna. Og finnst ósanngjarnt að vera eitthvað að dissa krakkana fyrir að ná ekki "tóninum". Hann er bara ömurlegur í sumum lögum og déskoti ómögulegt að herma eftir herpingnum í Stebba. En mín manneskja stóð sig langbest samt sem áður, Heiða á eftir að vinna þetta með þessu áframhaldi! Ég er reyndar nokkuð hrifin af mörgum öðrum þarna, röddin í Ylfu er frábær, Hildur Vala er mjög sjarmerandi og Lísa er skemmtileg. Báðir strákarnir geta gert góða hluti og röddin í henni Brynju litlu er mjög skemmtileg. Þetta verður meira og meira spennandi!
...

Thursday, January 27, 2005

Súkkulaði...

...er eins og sumir vita alveg í gríðarlega miklu uppáhaldi hjá mér. Ímorgun brá hins vegar við að ég blótaði því í sand og ösku. Ég nefnilega átti svona rauðar Lindt kúlur eftir frá því um jólin og þegar brjálað er að gera í vinnunni þá gleður mann fátt meira en einn kaffibolli og einn súkkulaðimoli. Ég vippaði því einum slíkum Lindt mola í veskið í gær. En svo var bara svo mikið að gera að ég gleymdi súkkulaðinu. Eiginlega alveg þar til í morgun þegar ég var að leita að augnblýantinum mínum í veskinu einhvers staðar og rak fingurna í klístrað súkkulaði. Veskið er sem sagt allt útatað í súkkulaði að innan. Er eiginlega ónýtt. AArrrrg!

En á hinn bóginn má svo sem finna eitthvað jákvætt....því ég hef verið lengi á leiðinni að kaupa mér annað veski. Og nú neyðist ég til þess! Þannig að súkkulaði er bara alltaf af hinu góða?

...

Thursday, January 20, 2005

Skemmdar sellur

Ég er ekki frá því að kvefið sem hrjáði mig um daginn (og er eitthvað að þvælast fyrir mér ennþá) hafi skemmt nokkrar sellur. Ég er t.d. að gleyma ótrúlegustu hlutum. t.d. afmæli vinkonu minnar. Mundi þó eftir afmæli systra minna í gær og mun leggja mig fram um að muna eftir afmæli móður minnar á morgun. En ég held að það sé eingöngu vegna þess að ég hef með herkjum munað eftir því að taka inn lýsi og vítamín í tæpan hálfan mánuð. Og hef borðað fisk annan hvern dag frá áramótum næstum því.

Æ, svo er Nizza með Nóa kroppi voðalega gott til þess að gefa sellunum smá stuð síðla dags. Ekki veitir af þegar maður er að lesa dóma sem fjalla um tekjuskatt....

...


Wednesday, January 12, 2005

Stundum vildi ég óska þess að ég byggi við Laugaveginn því þá gæti ég staulast í nærliggjandi búðir og keypt mér almennilegt te eins og Nanna! Jafnvel lent á einni útsölu í leiðinni. Annars er ég yfirleitt fegin að mínir næstu nágrannar eru gæsir, hestar og svanir. Nema núna. Mig langar í gott te. Svona Earl Grey með yasminblómi eða Mangó te með smá sítrónuberki.
...
Stjörnuspáin mín í dag:

HRÚTUR 21. mars - 19. apríl
Hlunnindi af ýmsu tagi rata til þín í dag. Lof, launahækkun og viðurkenning fyrir framlag þitt eru nokkur líkleg dæmi. Fólk víkur til hliðar þegar þú átt leið hjá.

Mér sýnist ég þurfi að fara í vinnuna í dag þrátt fyrir veikindin. Ég fer ekki að sleppa von um lof, launahækkun og viðurkenningu..
...
Þriðji í flensu....

Ligg 3ja daginn heima í röð í veikindum. Þvílík leiðindi. Einmitt þegar maður ætlar að fara að taka sig og sína í gegn í heilsunni, borða hollan mat, hreyfa sig, hreinsa út jólaskrautið, raða heimilisbókhaldinu og vera svolítið uppbyggileg á allan hátt þá hryn ég í vonda og leiðinlega kvefflensu með hita. Oj bara. Það á að banna svona pestir. Ég og Rúdolf erum ansi lík með rauðu nefin okkar og heilinn á mér er stíflaður af hori. Ömurlegt. Ekki skrítið þótt maður verði hálfgeðvond vegna þessa.
....

Wednesday, January 05, 2005

Frumraun

Ég hafði ákveðið að ég myndi ekki blogga fyrr en ég fengi þráðlausu ADSL tenginguna í gagnið heima. Og loksins gerðist það, Síminn fann Álftanesið á kortinu og tengingin komst á. Eftir hálfsmánaðarbið. Ótrúleg þjónusta ef þjónustu skyldi kalla.

Það er nokkuð skemmtileg tilbreyting að horfa á sjónvarpið OG krúsa á netinu. Lúxus sem ég hef ekki upplifað fyrr en núna hérna heima. Einnig get ég þá unnið og spjallað við bóndann. Eða unnið og horft á sjónvarpið. Tja eða krúsað, unnið, spjallað og horft....
...

Tuesday, December 28, 2004

Annar dagur í syfju

Gríðarlega er ég löt í dag. Og syfjuð eitthvað. Fór samt að sofa á skikkanlegum tíma og svaf bara ágætlega.
Það var napurlegt að vakna við þær fréttir í morgun að fleiri tugir þúsunda manna hafi líklega farist í flóðunum í Asíu. Þetta eru að sögn fréttamanna mestu hamfarir sögunnar. Lík að skolast á land út um allt og drepsóttir yfirvofandi. Hörmulegt. Í pistli aftan á Fréttablaðinu í morgun var fólk hvatt til að gefa frekar í söfnunina fyrir bágstadda í Asíu heldur en að spreða peningum í flugelda. Svo sem góð hugmynd enda hvort eð er spáð ömurlegu veðri á Gamlárskvöld. Hins vegar vil ég benda á að íslensku björgunarsveitirnar fá sínar tekjur einmitt í gegnum flugeldasöluna. Þeir eru svo sem ekkert á miklum ríkisspenum og reyndi nú heldur betur á þær yfir jólin fyrir norðan og austan. Það er kannski svolítil skammsýni að hvetja fólk til þess að kaupa ekki flugelda þótt auðvitað sé málsstaðurinn góður.
..

Monday, December 27, 2004

Örfáir..

...eru í vinnunni í dag. Flestir voru svo skynsamir að taka sér frí í dag. Mér finnst ég því vera ónlíðelónlí. Ég held að þetta verði stuttur dagur. Ég þarf líka að baka fyrir morgundaginn. Þá er nefnilega annar í aðfangadagskvöldi. Ameríska gengið mætir á svæðið í fyrramálið og það verður fjör í foreldrahúsum. Julefrokost, pakkar og öll fjölskyldan ásamt mökum og börnum. Ég held ég hætti líka snemma á morgun!
..
Jólin búin...

..og maður er bara mættur í vinnuna aftur. Það var hríð þegar ég keyrði hingað í morgun og ég hefði alveg verið til í að lúra lengur undir sænginni með bók. En skyldan kallar. Ég ætla þá bara að hlakka til næstu helgar. Það verður ekki eins annasamt hjá okkur hjónum í jólaboðum og skírnarveislum, þannig að þá ætti maður að fá nægan tíma til að slappa af og gera helst ekki neitt. Vona ég.
..

Thursday, December 23, 2004

Þorláksmessa

Jæja, Þorlákur skollinn á. Ótrúlegt en satt. Og það er barasta brjálað að gera! Við vorum að til hálftvö í nótt að þrífa og fúga og ég veit ekki hvað. Ég skal alveg viðurkennanþað núna að það var kannski of stór biti að flísaleggja eldhúsið í miðjum jólaundirbúningi og gangsetningu fyrirtækisins. Fyrir utan óvenjumikla desembertörn í vinnunni hjá mér. En ég leyfði mér nú samt að hætta rúmlega fjögur í gær og hitti æskuvinkonurnar niðrí bæ á kaffihúsi. Ógurlega indælt að sjá þær enda erum við of latar að hittast. Látum hversdagslegar annir trufla okkur í því! Ég þakka bara fyrir að ein okkar býr erlendis og kemur oft til landsins þannig að við drífum okkur í að hittast þegar hún kemur. Og við vorum sem sagt fullmannaður æskusaumó í gær. Röltum m.a. upp á Laugaveg og það er bara orðinn hluti af komu jólanna að kíkja á Laugaveginn með þeim stöllum. Bévíti kalt en samt gríðarlega jólalegt. Þegar heim var komið reyndi ég að koma einhverri reglu á í stofunni, en þar er allt undirlagt af dóti úr eldhúsinu. Svo fórum við í Bónus. Tef ekki mörg orð um það nema eitt: troðningur. *hrollur* Mundi í gær af hverju ég fer helst ekki í Bónus. Enda þarf ég hvort eð er að fara í Fjarðarkaup í dag. Segi enn og aftur, ég dýrka þá búð! Eftir langan verslunarleiðangur fórum við með dót á nýja vinnustað bóndans. Kaffikönnu og síma. Já, betra að vera með síma ef einhver skyldi hringja og panta fisk...ekki síst þegar maður er að fara út í þannig bissness að selja fisk... :o) Komum heim um ellefu og þá beið hreingerning og fúgun á eldhúsflísunum. Ég fór í hreingerninguna og bóndinn í flísarnar. Ég réðist til atlögu á baðherbergið og tilkynnti eiginmanninum klukkan hálftvö í nótt að það mætti helst ekkert gera neitt í klósettið. Alveg fram að jólum. Postulínið glansar svo gríðarlega og ég vildi helst halda því þannig. Hann horfði á mig í forundran. Fannst þetta eitthvað óraunhæfar kröfur af minni hálfu.

Jæja, ég þarf að vinna eitthvað í dag, þökk sé íslenskum viðskiptamógúlum sem geta ekki tekið sé frí í desember. Þarf samt að klára að kaupa í matinn, tvær jólagjafir og eina skírnargjöf, þrífa stofuna og eldhúsið og gera húsið gestahæft fyrir skötuboðið klukkan sex.

Eitt að lokum, litla systir útskrifaðist núna í vikunni með Master í mannauðsstjórnun og með glæsibrag og verður hér eftir eingöngu titluð Il Maestro. Ég er voða stolt af henni enda raðaði hún pent bara A í einkunnabókina sína. Og svo er hún að flytja heim líka með fjölskylduna. Bara örfáir dagar þangað til. Jibbííí!!!!
...

Wednesday, December 22, 2004

Það er eins gott...

...að það verði tekið á því í ræktinni í janúar. Því hér flæðir Nóakonfekt um allar hæðir. Og sem sérstök áhugamanneskja um súkkulaði stenst ég ekki mátið. Ónei. Þetta gæti farið illa...
..

Monday, December 20, 2004

Oh Tannenbaum, oh Tannenbaum...wie schön sind deine Blätter...

Arkaði í Blómaval í gær inn á milli jólagjafakaupa (sem notabene eru ekki eins einbeitt, hnitmiðuð og ákveðin og hjá henni Kerlingu ) og leitaði að jólatré. Að venju stefndum við hjónin á háu trén fyrir innan, þ.e. yfir 2 metrar enda næg lofthæð í stofunni og stórt tré sómir sér vel þar. Á leiðinni datt ég um grenivöndul sem reyndist vera jólatré, bara svolítið mikið um sig. Rétt rúmur meter á hæð og enn meira á breiddina. Sem sagt jólatréskúla. Og þarna sem ég stóð við eitt stæðilegt tveggjaoghálfsmetra jólatré sá ég í jólakúluna og fylgdist með hvernig allir virtust detta um aumingja tréð. Fannst það vera hálfeinmana og utangátta, enginn virtist veita því athygli þarna sem að hékk í spotta við gangveginn. Á endanum vorkenndi ég trénu svona ógurlega og endaði auðvitað á að kaupa það. Var að klára að skreyta það og verð bara að segja að það er ósköp fallegt núna. Breið og fallega skreytt grenijólakúla....

Annars rétt hangi ég vakandi. Kann ekki alveg við það að fara að sofa á meðan iðnaðarmenn eru að verki í eldhúsinu....
...

Monday, December 13, 2004

Ýmislegt...

...hefur gerst síðan síðast. Ein lítil prinsessa fæddist þann sjöunda desember og önnur prinsessa átti afmæli þann tíunda desember. Þann sama dag, þ.e. á aðfararnótt þess tíunda, kom lítill prins í heiminn. Ég heilsaði upp á hann í gærkvöldi og fékk að líta dýrðina augum. Heimsótti líka afmælisprinsessuna og leit þá bleiku dýrð einnig augum. Herbergið hennar er eitt það albleikasta sem ég hef séð. Það er æði. Ég gæti leikið mér lengi með dótið hennar. Ég er að hugsa um að biðja um Barbie dót í jólagjöf...
Fyrstnefndu prinsessuna hlakka ég einnig mikið til að sjá og stefni á að gera það hið fyrsta. Hún mamma hennar, hálfnafna mín, má því eiga von á mér og hinum fyrrverandi vinnufélaganum bráðlega. Við bíðum spenntar eftir því að fá að klípa.... :o)

Annars leið helgin fljótt enda undirlögð af jólaveislum og áti. Við afrekuðum það einnig hjónin að fara út á lífið fram undir morgun. Kíktum á Thorvaldsen og svo á Rex. Bara ferlega gaman. Sá einmitt gamlan skólafélaga úr grunnskóla. Þessi sem allar stelpurnar voru skotnar í. Sá leit karlalega út! Enginn sjarmi eftir. Bara allt bú. Sá einnig fleiri gamla félaga sem virtust vera á annarri eða þriðju umferð í makaleit. Ég fór því alsæl heim með minn mann og glöð yfir því að vera ekki í þeirra sporum. Þótt það sé allt í lagi að kíkja aðeins á lífið þá líður mér yfirleitt betur heima hjá mér eða á fjöllum. Gæti vart hugsað mér að vera á þeim stað í lífinu að leita mér að maka. Myndi að öllum líkindum bara sleppa því og líða bara vel. En burtséð frá ölli slíku þá var miklu skemmtilegra á Rex. Betri þjónusta á barnum, flottari tónlist, hægt að fá sæti, rýmra til lofts og hægt að dansa.

Er á leiðinni upp á Skaga í jólasúkkulaði og smákökur í boði Vesturlandsdeildar Ferðaklúbbsins 4x4. Ég man ennþá hvað það var gott hjá þeim kókóið í fyrra. Namminamm....
..

Monday, December 06, 2004

Afrek!

Ég afrekaði ýmislegt um helgina. Gerði slatta af jólakortum, keypti þrjár jólagjafir, kveikti á aðventukertum í fyrsta sinn á þessari aðventu, skreytti stofuna oggusmá, fór yfir jólakortalistann, kláraði Kleifarvatn með Arnaldi, sendi frá mér starfsframmistöðumatið í vinnunni og skrifaði jólagjafahugmyndalista fyrir fjölskylduna. Endaði helgina síðan á að klára verkefni fyrir vinnuna sem varð að vera tilbúið í dag. Ég sem sagt hafði það af í gærkvöldi klukkan hálfellefu.
Hins vegar bakaði ég ekki Sörur. Keypti reyndar allt í þær. Heyrði í einhverjum jólaskipuleggjanda í útvarpinu um daginn að galdurinn að friðsælli og afslappaðri jólaaðventu væri að skipuleggja sem fæsta viðburði á aðventunni og standa svo við þessa fáu. Ef maður t.d. ætlaði sér að skrifa jólakortin þetta kvöldið og baka hitt þá á maður að standa við það. Mér sem sagt tókst ekki að standa við að baka þessa einu kökusort. Ég þori ekki að setja mér annað sörubakstursmarkmið.
..

Wednesday, December 01, 2004

Jólakort

Ég föndraði loksins nokkur jólakort í gærkvöldið en föndurdótið ásamt tilheyrandi lími, litum og pappír hafði legið á sama stað í nokkrar vikur án þess að vera snert. Nú er ekki seinna að vænna en að drífa það af að uppfæra jólakortalistann og koma þessum kortum út! Mig vantar reyndar slatta í viðbót ef allir eiga að fá heimagerð kort, en ég held ég sleppi því. Að venju hef ég keypt kortin frá Barnaheill og Umhyggju og þrátt fyrir að þau kort séu ekki þau alfallegustu á svæðinu þá ætla ég nú að senda þau út. Það er svo sem endalaust hægt að eltast við að styrkja góðgerðarmálefni, ekki síst fyrir jólin, og ég var orðin ringluð á tímabili fyrir nokkrum árum, því ég fékk samviskubit yfir því að segja nei. Keypti þess vegna allt sem mér var boðið til kaups til styrktar hinum og þessum. Var ein jólin komin með grilljón kort, geisladiska, dagatöl og fleira og fleira sem nýttist mér ekkert og ég sat uppi með. Þar til ég ákvað að takmarka mig við eitthvað ákveðið. Og það eru veik börn, fötluð börn, einstök börn og sveltandi börn í útlöndum. Sem sagt börn sem þurfa á hjálp. Síðan þá hefur þetta ekki verið vandamál. Ef mér er boðið eitthvað til kaups sem tengist börnum þá segi ég já, ef ég á aur. Og ég vona að allir hinir verði ekki sárir út í mig.
..

Tuesday, November 30, 2004

Allt að gerast!

Jæja, kominn þriðjudagur og 25 dagar til jóla. Sem betur fer allavega tuttuguogfimm dagar....því lítið hefur farið fyrir einhverjum undirbúningi á þessum bæ. Ég tók mig þó til í gær og skipti um diskamottur á eldhúsborðinu og skarta núna svona rauðum og ljósum diskamottum úr Ikea. Voða sænskar en mér finnst reyndar sænskt jólaskraut alltaf svo fallegt og jólalegt. Helgast líklega af því að stór hluti af því jólaskrauti sem ég man eftir í "gamla daga" kom einmitt úr Ikea, svona úr furu og hálmi, bundið saman með rauðum borðum. Man einmitt eftir því að hafa farið í Ikea á meginlandinu þegar ég var átta ára og hélt að jólin væru bara hreinlega sænsk að uppruna.
Veit nú ekki hvort einhver af jólalögunum sem við sungum á tónleikunum hafi verið sænsk, en allavega heppnuðust þeir vel að sögn. Það hlýtur að vera því eftir eitt lagið (Boðskap Lúkasar - öðru nafni BoneyM-lagið) var stappað og blístrað og kallað. Voða gaman. Og við vorum klöppuð upp aftur og aftur og vorum búin með varaprógrammið á endanum. Þeta var virkilega gaman, enda líka gaman að syngja bæði sálma og svo óhefðbundnari jólalög. Við syngjum svo fyrir eldri borgara á fimmtudaginn og líklega eitthvað meira sem er ekki ljóst ennþá.

Framundan er annasöm vika með grilljón verkefnum í vinnunni og í nýju fyrirtæki og ég vona að það verði ekkert búið að plana neitt á komandi helgi. Ég þigg alveg svona helgi heima að þrífa, uppfæra jólakortalistann og koma smá skipulagi á líf mitt og tilveru. En ég lýsi því hér meðyfir að ég ætla mér ekki mikið á aðventunni. Held ég aflýsi öllum bakstri. Treysti á tengdó og bakaríin! Lofa þó að baka gúmmelaðið mitt handa familíunni yfir hátíðarnar.
..

p.s. Já, og bara 28 dagar þar til að litla systir flytur heim! Víííííí!!!!!!!!!!!!!!!!!

..

Monday, November 22, 2004

Falalalaaaalaalaalala!

Var að frétta það áðan að búið er að færa tónleikana okkar yfir í tónlistarhús Ýmis við Öskjuhlíð. Það er örugglega gaman að syngja þar! Við vorum á æfingu í gær i Gerðubergi og eitthvað hefur salurinn ekki alveg fallið í kramið hjá kórstjóra og kórformanni. Sá salur var allt í lagi, en svo sem ekki fyrir glæsileikanum að fara.
..
Gólfkuldi

Í fyrsta sinn síðan frostið skall á var þokkalega heitt í húsinu þegar ég fór fram úr í morgun. Þ.e. gólfið var ágætlega hlýtt viðkomu en ekki eins og skautasvell. Kominn tími til segi ég nú bara. Allir ofnar á fullu en samt var alltaf kalt. Nema uppi, þar var molla eins og á síðsumarsdegi í Miami. En þar sem ég kýs frekar kulda úti en rok og rigningu, þá ætla ég ekki að kvarta. Ég var sem sagt ekki að kvarta. Bara að ítreka það...
..