Handbolti...
Ég þori varla að hugsa mikið um HM í handbolta því það er svo leiðinlegt að gera sér vonir um gott gengi og svo gengur allt á afturfótunum. En landsliðið í dag er eitt það skemmtilegasta í langan tíma og þegar þeir náðu að sigra svona minni spámenn eins og Ástralíu og Grænland með góðum markamun þá fer maður að þora að vona oggupínusmá. Því það hefði verið svo týpískt fyrir þá að hálfklúðra þessum leikjum en fara síðan á seiglunni í gegnum erfiðari leikina. Ég hef alltaf átt erfitt með að fylgjast með spennandi handboltaleikjum. Í "gamla daga" þegar pabbi var að spila (eða liðin sem hann þjálfaði) þá hljóp ég iðulega fram á búningsgang, ég átti svo bágt með að fylgjast með. Bjó einnig til alls konar hjátrúarfullar reglur....ef ég hugsa svona þá tapa þeir, ef ég klæði mig í þetta þá gengur þetta ekki, ef ég sit þarna þá tapa þeir. Og á tímabili var ég alveg búin að finna það út að ef ég fylgdist með leik þá tapaði liðið sem ég hélt með! Þegar ég var að dæma leiki í gamla daga úti í Noregi, þá varð ég stundum að taka á honum stóra mínum....það hefði ekki alveg gengið ef annar dómarinn hlypi bara út af velli af því hann væri svo spenntur!!!
Allavega....ef leikurinn í kvöld verður svona jafnteflis-spennandi...þá verð ég örugglega hlaupandi fram í eldhús reglulega....eða tvístígandi í grennd við sjónvarpið.
No comments:
Post a Comment