Thursday, January 23, 2003

Nebbi kisi...

Ekki kom Nebbi heim í nótt. En ég ætla ekki að angra ykkur með þessari sorgarsögu, ég verð sjálf svo "dán" yfir því. En ég gerði lítið góðverk í gær. Sl. mánudag, eftir að Nebbi hvarf, þá birtist annar köttur heima hjá mér. Ofboðslega vinalegur og leit eiginlega alveg eins út og Nebbi, brúnbröndóttur með hvítar hosur og hvíta blesu á nebbanum. En þessi var 3 kílóum þyngri og greinilega eldri. en hann þvældist þarna næstu daga og var alltaf að stökkva inn hjá okkur. Hinar kisurnar mínar, þ.á.m. mamma Nebba, sögðu ekki orð, héldu greinilega að þarna væri Nebbi á ferð! En ég kíkti á eyrnamerkinguna og hringdi á dýraspítalann í gær og fékk uppgefið hver ætti hann. Þá kom í ljós að eigendurnir voru nýlega fluttir úr Hólmatúninu í næstu götu og þessi kisi hafði eitthvað ruglast í ríminu. En sem sagt, eigandinn kom í gærkvöldi og sótti hann þannig að Rex komst heim til sín í gær. Hann virtist ósköp glaður. Ég vildi óska að einhver fyndi Nebbaling....

No comments: