Það er kominn mánudagur á ný....
....kosningarnar yfirstaðnar og lífið að færast aftur í sitt fyrra horf. Hvað varðar úrslitin þá vil ég bara segja þetta.....enginn sjálfstæðismaður hefur enn hitt naglann á höfuðið í útskýringum sínum á því af hverju þeir töpuðu svona miklu fylgi. Málið er nefnilega að margir fyrrum kjósendur flokksins söknuðu ákveðinna atriða í málflutningi frambjóðendanna sem lúta að samúð og samkennd með samborgurum sínum. Það eru ekki allir Íslendingar velstæðir bissnessmenn í fjármálaheiminum. Flokkurinn gleymdi þeim kjósendum sínum sem eru með rétt tæp meðallaun og þurfa að leggja út marga þúsundkallana í heilbrigðisþjónustu. Hann gleymdi líka eldri borgurum og öryrkjum. Fjölskyldum með langveik börn og öðrum sem eiga við ýmsa sjúkdóma að stríða. Stefnumörkun á sviði heilbrigðis- og velferðarmála og menntamála var alltof óljós. Því miður. Og flokkurinn virðist ekki geta fjölgað konum í framboði. Ég held að það sé ákveðið viljaleysi þeirra sem stjórna sem ráði því. Ég hlusta ekki á eitthvað kjaftæði um að hæfu konurnar finnist ekki. Þær eru þarna, nokkuð margar, ef vel er að gáð. Ég bind vonir mínar við að þessi flokkur framfara og frelsis hugsi sinn gang og endurskoði afstöðu sína í ýmsum málum. Og muni að það er til fullt af fólki sem þarf á hjálp okkar hinna að halda, ekki af því að það eru aumingjar...langt í frá. Hroki og viljaleysi til að hlusta mun aldrei skila okkur velferðarþjóðfélagi í reynd.
No comments:
Post a Comment