Friday, May 09, 2003

Kosningar....

...á morgun. Þetta verða fróðleg úrslit. Vonandi fer þetta á þann veg eins og ég kýs. Ég get þó ekki sagt að ég hafi fylgst með frambjóðendum í útvarpi eða sjónvarpi nema að litlu leyti. Mér leiðast svona rifrildi. Þetta eru ekki umræður af viti. Alls ekki. Þess vegna er ágætt að skoða vel bæklingana sem berast inn um lúguna. Hefði reyndar mátt vera meira af því - ég vil gjarnan geta setið með stefnu flokkanna í rólegheitum og spáð í þessi kosningaloforð. Skoða frambjóðendur og reyna að mynda mér einhverja skoðun. Átta mig á því hvað ÉG vil og hvaða flokkur virðist ætla að sinna mínum helstu málum best. Það er ekkert svo auðvelt þegar stjórnmálamennirnir tala hver upp í annan. Æ, þá er skemmtilegra að virða fyrir sér margæsina hérna á Álftanesinu. Hún setur svip sinn á túnin hérna, mörg hundruð krúttlegra gæsa að éta á sig gat fyrir næsta hluta ferðalagsins sem endar í Norður-Kanada. Svo sá ég að fleiri hestum hefur verið hleypt á beit hérna á túnin norðanmegin á nesinu. Svo þegar ég kom út í gærmorgun sat feit og sælleg grágæs á flötinni fyrir framan. Og Nebbi kisi sat stjarfur og horfði. Skildi hvorki upp né niður í því hversu stór þessi fugl var, sem vappaði þarna rétt fyrir framan hann. Svo bara kvakaði gæsin, "hnéhné", og tók á loft. Ég hélt að það myndi líða yfir kisa. Hann allavega riðaði til falls..... :o)

No comments: