Wednesday, March 17, 2004

Frekja.

Sumir karlmenn eru ótrúlega frekir. Tja, eiginlega flestir. Það er kannski rangt að alhæfa svona, en í nokkur skipti nýlega hef ég verið á fundi þar sem ungir, karlkyns stjórnendur hafa verið viðstaddir og um leið og þeim var misboðið, eða þeir móðguðust eða eitthvað sem sagt var fór eitthvað öfugt oní þá, þá bara átti að pakka saman, enda fundinn og fara. Ekki einu sinni hægt að ræða málin eða horfa á þau frá öðru sjónarhorni. Ónei. Bara fýla, frekja og ólund, yfirlýsingar og stóryrði alveg út í hött. Stjórnin á fundinum tekin af öðrum viðstöddum með frekjulegum tóni og ráðskast með aðstæður. Ástæðan er einföld, þeir geta ekki tekið gagnrýni á þroskaðan hátt. Hef ennþá ekki lent í þessu með unga kvenkyns stjórnendur. Þær virðast tilbúnari til að ræða málin og viðurkenna að það geti verið tvær hliðar á sama peningnum. Æ, ég er bara ennþá pirruð. Karlar eru alls staðar og ráða flestu. Óþolandi þegar maður veit fyrir víst að konur stjórna miklu betur.

Ég hefði getað verið miklu orðljótari í þessum pistli, og t.d. sagt að karlmenn séu fávitar í anda Nornanna, en ákvað að sleppa því. Þeir eiga það ekki allir skilið, allavega ekki gæðablóðið heima hjá mér. En það er mjög góð aðferð í svona tilfellum þegar maður hittir fyrir frekan, hrokafullan og leiðinlegan karlbjálfa að ímynda sér hann berrassaðan og hugsa "fáviti". Bregst aldrei....

..

No comments: