Friday, March 12, 2004

Tippklúbburinn og heilsuátakið.

Ég er orðin virðulegur meðlimur tippklúbbs hérna í vinnunni. Þarf að skila af mér skýrslu um væntanleg úrslit í 2 leikjum í ensku knattspyrnunni um helgina. Hef legið yfir enskum slúðurvefsíðum og kannað hvort liðsmenn umræddra liða séu meiddir, í banni eða í fangelsi. Hef komist að þeirri niðurstöðu að líklega mun Wigan sigra Bradford í 1. deildinni, þó einnig séu líkur á jafntefli og Arsenal rúllar upp Blackburn í meistaradeildinni. En ef einhver myndi spyrja eitthvað nánar, s.s. hvað séu félagslitirnir, hver sé helsti markaskorarinn eða hvar í fjandanum í Englandi þessi lið séu staðsett þá myndi ég ekki getað svarað því. Ekki heldur hver varð meistari í fyrra. Ég nefnilega veit ekki rassgat um enska knattspyrnu. Aftur á móti hefði ég líklega verið liðtæk í formúlu 1 klúbbi. Þótt síðasta keppni hafi verið ÖMURLEGA leiðinleg þá ætla ég nú að horfa á þetta með öðru auganu í sumar og vona að Schumi og Co geri ekki endanlega út af við allan áhuga minn á formúlunni. Það er ekkert spennandi við það að hann vinni allar keppnir með yfirburðum. Frekar leiðigjarnt...

Svo voru mælingar áðan vegna heilsuátaksins í vinnunni. Það hafa fokið af mér nokkrir sentimetrar, vesgú. Og fituprósentan hefur lækkað. Vigtin hefur örlítið færst niður á við. Ég er sem sagt á réttri braut!!!
...

No comments: