Mínútu í munni, mánuð á maga...
Þetta sagði einu sinni fyrrverandi leigusalinn minn við mig þegar hún bauð mér í afganga af himneskri súkkulaðisælu sem hafði verið á boðstólum í saumaklúbbi hjá henni. Þessi kona var einn sá mesti öðlingur sem ég hef kynnst og Ísafold sá ekki sólina fyrir henni. Kötturinn sá var líka alltaf voðalega mikið fyrir nágranna okkar...og er enn. En sem sagt, hún Gígja sagði þetta við mig þegar ég smjattaði sem mest á súkkulaðihnossgætinu. Sú hefði átt að sjá til mín í kvöld. Var ég þó ekki smjattandi á neinu súkkulaði heldur afsprengi matargerðar í hæsta gæðaflokki. Kokkarnir á Sjávarkjallaranum hljóta að vera frá annarri plánetu. Maturinn var svo góður að matreiðslumaðurinn/eiginmaðurinn sagði að þessir kokkar væru komnir langt fram úr því sem hann kynni í faginu og er þá mikið sagt. Hann reyndar hafði upp úr þjóninum hvað væri í trufflusósunni í forréttinum hans og á ég því von á góðu þegar vel liggur á mínum. En það hjálpaðist allt að til að gera kvöldið (matinn!!!) ógleymanlegt. Ég féll alveg fyrir innréttingunum á þessum stað, ekki síst veggkertastjökunum sem eru á trésúlunum og ljósunum (sem notabene voru skoðuð vel enda henta einstaklega vel til eftiröpunar) og svo grófu steinunum í gólfinu og á veggjunum. Svo var maturinn bara gjörsamlega truflaður. Humarinn í forrétt með kóríander, Foie Gras og blómkáli var hárrétt eldaður, lambakjötið með truflunum var himneskt og það sem Beggi fékk sér var ekki síðra. Saltfiskurinn hans var To Die For, eins og kaninn myndi segja. Við fengum líka svona smásmakk á undan og það er á hreinu að ég þarf að grafa upp uppskrift af saltfiski með einvhers konar Chutney sem er svo steikt. Obbolega gott. Peter Lehmann Wildcard smakkaðist voðalega vel með þessu öllu, ég vildi ekki rauðvín að þessu sinni og það kom ekkert að sök að fá bragðmikið hvítvín með lambinu, enda allur maturinn einhvern vegin mjög léttur í maga. Fjórar og hálf stjarna. jamm....
..
No comments:
Post a Comment