Wednesday, April 07, 2004

Skóleysi

Ég er gjörsamlega skólaus. Þótt eiginmaðurinn viðurkenni það ekki þá er þetta staðreynd. Í nokkur skipti hef ég gert tilraun til þess að kaupa skó fyrir vinnuna en aldrei fundið neina og endað á því að kaupa eitthvað annað....t.d. dragt í Benetton eins og síðast. Það er nefnilega ekkert svo mikið skóúrval í búðunum. Þá á ég við skó sem hægt er að vera í vinnunni, eru svolítið pæjulegir en samt þægilegir. Ég skil ekki konur sem geta verið í svona skóm sem hafa enga hælfestingu, enda sést það líka á göngulaginu hjá þeim að þær þurfa að ganga varlega svo þær haldist í skónum. Ég nenni ekki að standa í svoleiðis í vinnunni, hlaupandi milli hæða og á milli fyrirtækja.
Sá reyndar eitt skópar í Steinari Waage, en það kostaði tæp mánaðarlaunin mín eða því sem næst þannig að ég sleppti því. Ég er ekki Carrie í Sexinu sem eyði 400.000 kalli í Manohlo Blahnik skó eða hvað sem þetta nú heitir!

Ég ætla að gera eina skóleitartilraun enn. Nú er það Laugavegurinn. Annars þarf ég að mæta í vinnuna í strigaskóm við dragtina n.k. þriðjudag...
..

No comments: