Vetrarveður
Það er brjáluð hríð hér úti. Þá er gott að geta bara farið í vinnuna inn í eldhús, sest þar með kaffibollann og byrjað að vinna. Engin þörf á að fara út, allavega alveg strax. Það hittir svo vel á að í vinnunni er verið að umturna öllu, taka niður veggi og skrifstofur og setja upp ný húsgögn. Smiðir út um allt að berja og hamra og enginn vinnufriður. Allt í kössum í kringum mann og maður finnur ekki neitt. Þess vegna er bara mjög hentugt að vera í friði úti á Álftanesi með vindgnauðið úti fyrir.
No comments:
Post a Comment