Vönkuð....
Ég er hálfvönkuð í dag. Kom heim frekar seint eftir hörkujeppaferð þar sem ég rann m.a. á rassinn niður hálfan Tungnafellsjökul og er næstum því að geispa golunni hérna í vinnunni. Enda ekki skrítið því þetta var önnur helgin í röð sem ég var á ferðinni. Fimmta ferðin frá því í janúar. Enda hljómar það voðalega vel að að næstu helgi verðum við hjónin bara heima. Og líklega næstu. En svo koma páskar og þá lofa ég því ekki að ég verði heima nema ferðaveður sé slæmt eða að bóndinn þurfi að vinna.
No comments:
Post a Comment