Saturday, April 23, 2005

Af því að það er laugardagur...

..og þá eru alltaf spiluð Eurovison lög á Rás 2 þá fáið þið smá Eurovision blogg....

Ég hef hlustað á nokkur lög...tja..segjum aðeins fleiri en nokkur..og búin að mynda mér skoðun á flestum lögum og á mér nú þegar nokkur "uppáhaldslög". Það er auðvitað eins og alltaf að lögin er gríðarlega misjöfn en þannig er þessi keppni nú bara og þess vegna er hún svo skemmtileg!
Við sátum við borðstofuborðið um daginn, ég og bóndinn og vorum að vinna í bókhaldinu. Ég ákvað að gera smá tilraun og leyfði honum að hlusta á nokkur lög sem hafa að vera að skora hæst á www.esctoday.com og að hans mati bar eitt lag af.....norska lagið! Það er nefnilega glettilega skemmtilegt, ekki síst fyrir þær sakir að vera mjög rokkað og minna svolítið á Kiss eða einhverja aðra melódíska þungarokkara. Sem er einmitt eitthvað sem minn maður fílar (fyrir utan nýaldarpopp frá níunda áratugnum...). Þannig að ég mæli með því að þið hlustið (og horfið) á Norðmennina í WigWam. Það á eftir að verða mjög fróðlegt að sjá þá í keppninni (líka hvort þeir verði í þessum silfurlituðu púdelhundabúningum eða ekki!!) Annað hvort floppa þeir algjörlega eða þeir eiga eftir að taka þetta í nefið!
Ein besta ballaðan er frá Möltu, sungin af stæðilegri Búbbulínu að nafni Chiara með gríðarlega fallega rödd. Ég held að hún hafi keppt áður, allavega er hún eitthvað kunnuleg. Eiginmanninum fannst lagið líka ósköp ljúft að hlusta á.
Grikkir eru gríðarlega sigurvissir með sitt framlag, sungið af einhverri þekktri dívu að nafni Elena. Mér finnst lagið og myndbandið vera frekar slöpp eftiröpun af Jennifer Lopez, ég skil ekki þegar hörðustu Eurovision aðdáendurnir dásama þetta gríska framlag. Ég er hrifnari af rúmenska laginu, með skemmtilegum trommutakti - alveg svona eðalsólarlandadiskólag með smá etnísku ívafi. Gæti orðið flott á sviði enda er lagið grípandi. Það gríska skoraði ekki hátt í hlustun bóndans, þetta rúmenska sagði hann "í lagi", hvað sem það nú þýðir.
Hann sænski Martin Stenmarck með lagið sitt "Las Vegas" þykir líkur Tom Jones og lögunum hans og það er bara ansi mikið til í því. Mér finnst lagið hins vegar ekkert spes og hinn upprunalegi Tom er með ólíkt meiri rödd. Ég frétti að hann hefði haldið ásamt fríðu föruneyti til borg hinna miklu ljósa í vestri og tekið upp nýtt myndband þar, enda Svíar eitthvað uggandi yfir þessu framlagi. Hinn mikla Slagerfestivalsþjóð getur ekki hugsað sér að lenda í undankeppninni á næsta ári og því á að tjalda öllu til, svona til að redda þessu á endasprettinum....
Sviss sendir stelpusveit að nafni Vanilla Ninja í keppnina, en þær eru eins og sagt var frá í Mogganum í morgun alveg gríðarlega vinsælar..og ekki Svissneskar frekar en ég. Þær eru með lag, "Cool vibes" sem er samt alveg ágætt og gæti orðið vinsælt utan keppninnar í ákveðnum hópum fólks (stelpna) Það er hins vegar ekki hátt skrifað hjá mér þótt það sé í 3. sæti í skoðanakönnun Esctoday um vinsældir laga í undankeppninni (þar sem Ísland er nr. 1!). Lag nr. 2 hefur hins vegar hreiðrað vel um sig á meðal uppáhaldslaga minna en það er frá Ungverjalandi. Etnískt lag, með fallegri melódíu og flottum takti (og svoldið mikið "eurovisonlegt" ), og svo er það ekki sungið á ensku! Vonandi fara flytjendurnir ekki að breyta því neitt fyrir keppnina. Og ég vildi gjarnan sjá þennan dans í keppninni - svona þjóðlegt í anda Riverdance og sígauna. Þetta lag er einmitt eitthvað svona týpískt sem ég myndi falla fyrir!..

Öll lögin og myndböndin er hægt á sjá á www.eurovision.tv!

...

No comments: