Monday, May 23, 2005

Letiblogg...

...væri kannski rétta yfirskriftin á þessari bloggsíðu! Ég hef ekki alveg haft hugann við þessa ágætu iðju en hef þó ýmislegt dundað við síðan síðast. M.a. fórum við til New York um daginn og svo er heimilið að leggjast í rúst (vonandi) með innrás smiða sem ætla að reka lokahnykkinn á framkvæmdirnar sem hófust fyrir tæpum 4 árum með kaupum á fokheldu húsinu. Helgin átti m.a. að fara í að ganga frá þannig að inni í stofunni rúmist háir stillansar og í bílskúrnum gifsplötur og sög.
Annars er voða lítið hægt að gera úti við í þessu fjárans kulda. Hann hefði nú mátt vera 2 mánuðum fyrr á ferðinni. Aðeins of seint í rassinn gripið að fara að frysta snjólufsurnar á hálendinu núna! Nú vil ég komast í beðin og matjurtagarðinn og gróðursetja sumarblóm en það er varla hægt að vera úti án þess að vera með húfu og vettlinga. Og ég nenni því nú ekki. Sem betur fer skín sólin þannig að maður sér betur til inni og getur paufast í rykinu ofan í skápum og skúffum í máttlausum tilburðum við vorhreingerningu.....

New York er frábær borg. Við hjónin féllum alveg fyrir henni. Ég ætla hiklaust þangað aftur og vonandi sem fyrst. New York búar eru ósköp indælir og á margan hátt mun evrópskari í lund en ég hélt. Við sáum auðvitað fræga kvikmyndastjörnu á röltinu í Soho með hundinn sinn og það kom okkur fyrst og fremst á óvart að hún skyldi ekki vera pínulítil a la Kiefer Sutherland heldur alveg eins og hún virkar í X-men og Nip/Tuck - hávaxin og gríðarlega grönn.
Empire State og Central Park, World Trade Center Site og Fifth Avenue - bara allt saman áhugaverðir staðir að heimsækja. Times Squere var klikkað og Village og Soho skemmtileg hverfi. Ég var þó hrifnust af Upper East Side, ansi ljúft að rölta þar. En það er ekki hægt að skoða allt á 5 dögum og því bráðnauðsynlegt að fara aftur!

....

No comments: