Wednesday, April 20, 2005

Fiðringur

Við hjónin áttum erindi í Grafarvoginn í gær um kvöldmatarleytið í góða veðrinu og það var alveg eins og sumarið væri komið, alls staðar fundum við grilllykt. Þegar sól í heiði og fellihýsi aftan í jeppanum bættist svo við ilminn þá urðum við alveg heltekin af sumarfiðringi. Enda sumardagurinn fyrsti á morgun, þótt það sé nú ennþá of snemmt fyrir útilegur!

Það er líka orðið ansi vorlegt í garðinum, allur gróður að taka við sér og kettirnir orðnir eirðarlausir eftir alla inniveruna. Sunna persi er komin í sumargallann, eða réttara sagt komin úr gallanum, því hún var tekin og rökuð allmyndarlega um daginn. Minnir svolítið á púdelhund núna.... En henni líður mun betur því í vetur mátti iðulega sjá hana liggjandi á bakinu og másandi eins og hund, henni verður nefnilega ansi heitt í öllum þessum þykka og síða feldi. En núna vill hún bara kúra, helst auðvitað ofan á hausnum á mér þegar ég er sofandi. En það er ekki í boði, þ.e. á meðan ég veit af mér, en ég hef hana grunaða um að læðast uppí eftir að ég er sofnuð!

...

No comments: