Thursday, April 21, 2005

Gleðilegt sumar!

Og það er bara nokkuð vorlegt úti (í rauninni fer Sumardagurinn fyrsti í mínum huga saman við vorkomuna, frekar en komu sumars...). Ætli maður bara skelli sér ekki út í garð og sinni vorverkunum. Það þarf að þvo gluggana, hreinsa beðin, fara í gegnum áhöldin í bílskúrnum og ekki veitir af að kíkja aðeins á viðlegubúnaðinn. Sjá hvað þarf að endurnýja og hvað þarf að laga. Svo væri örugglega bráðsniðugt að undirbúa kartöflugarðinn og matjurtagarðinn. Ég sé að graslaukurinn er bara kominn á fullt. Fróðlegt að sjá hvaða fjölæru kryddjurtir hafa þolað veturinn hérna á nesinu.

Svo er grill í kvöld hjá fjölskyldunni, ég efa það þó að við borðum úti!

..

No comments: