Saturday, June 04, 2005

Fyrsti dansinn

Í gær var fór ég í frábært partý sem var svo skemmtilegt að ég brosi enn hringinn. Stelpurnar úr vinnunni tóku sig saman og skipulögðu svona smá stelpupartý en strákarnir fengu reyndar náðarsamlegast að mæta seinna um kvöldið. En við stelpurnar byrjuðum geimið á því að fá til okkar hana Helgu Brögu að kenna okkur magadans. Við lærðum ýmislegt um þennan elsta dans sem var dansaður, m.a.s. er minnst á hann í biblíunni. Helga fór á kostum og kenndi okkur ýmis bráðnauðsynleg spor eins og nokkrar áttur, úndúlata, moka með skóflu og oriental - að ógleymdu því að shímma - ég biðst forláts ef þetta er ekki rétt stafsett, ég kann ekki alveg magadansísku. Þetta síðastnefnda, að shímma, er einmitt að hrista allt. Og mikið rosalega var þetta gaman - og erfitt!! Og það var ekki leiðinlegt að heyra að í Brasilíu, þar sem þessi magadans er gríðarlega vinsæll, sækjast konurnar eftir því að vera með mjaðmir og smá maga - því þá koma þessar hreyfingar miklu betur út! Sumar hverjar láta jafnvel setja í sig silikon á mjaðmirnar. Þetta gladdi mig og mínar mjaðmir mjög að heyra. Ekki frá því að ég sé aðeins sáttari við þær....
Svo var borðað og sungið og dansað. Alveg frábært kvöld. Og í dag er ég með harðsperrur á skrítnum stöðum í mittinu og mjöðmunum. Þessi dans leynir greinilega á sér!

...

No comments: