Saturday, June 04, 2005

X&Y

Á mánudaginn kemur út þriðja plata Coldplay, "X&Y" og alla helgina er hægt að hlusta á plötuna á tónlist.is. Hef verið að nýta mér það í dag á meðan ég hef verið að vinna og taka til og ég er bara hæstánægð með nýju plötuna. Og talandi um hljómsveitir, í partýinu í gær var auðvitað spilað heilmikið með Duran Duran. Og við sungum auðvitað Hungry like a wolf í Sing Star. Ekkert smá gaman! Nú er bara að bíða eftir tónleikunum í lok mánaðarins! En ég væri alsæl ef mínar uppáhaldshljómsveitir í dag myndi stoppa hérna á skerinu líka. En annars fer ég þá bara út á tónleika með U2 og Coldplay. Ég hefði getað skellt mér um þar næstu helgi í London, framlengja kórferðina um tvo daga og sjá The Edge og félaga, en það gekk ekki upp. En þá verður bara að stefna á helgarferð á næstu mánuðum. Verst hvað miðarnir eru fljótir að seljast upp. En ætli enginn sé að reyna að fá U2 hingað? Chris Martin og félagar eru búnir að koma tvisvar, vonandi vilja þeir koma í þriðja skiptið....

Já, kórferðin er á næsta leiti. Eftir viku verð ég í Bedford með bóndanum. Búin að syngja kvöldið áður í Sankti Péturskirkjunni þar. Og á morgun yrði Covent Garden á dagskrá. Og á þriðjudeginum er það sveitamenningin í ponsulitlum bæ þaðan sem kórstjórinn okkar er. Og við endum kvöldið á að borða heilgrillaðan "hog" (sem mér skilst að sé grís) með bændunum úr sveitinni. Ég held að þetta verði bara nokkuð gaman!
....

1 comment:

Anna Sigridur said...

Góða kórferð og góða skemmtun Soffía!!!