Hollusta
Á leiðinni heim í dag kom ég við í Fjarðarkaupum einu sinni sem oftar. Erindið var að kaupa eitthvað auðvelt til eldunar enda heimilið í rúst eins og ég hef aðeins tæpt á áður. Einnig vil ég að smiðunum mínum líði vel og hafi eitthvað að narta í með kaffibollanum. Innkaupakarfan mín var því frekar döpur útlítandi, með skyndifæði og bakarísbakkelsi ríkjandi yfir örfáum tómötum og einni papriku. Að ógleymdri tveggja lítra Pepsiínu fyrir málarann sem ekki drekkur kaffi. Og að venju lá leiðin að kassanum og þarna stóð ég nokkuð lengi í röð. Eins og svo oft áður þá gleymdi ég mér við gláp á annað fólk, iðja sem ég hef stundað mikið og lengi og venjulega. Ég hef alveg gríðarlega gaman að því að fylgjast með fólki, sérstaklega þegar ég er í búðum. Horfi stíft ofan í innkaupakörfurnar hjá öðrum, vonast jafnvel til að fá hugljómun í innkaupunum, eitthvað sem mig vantar oft um hálfsexleytið á daginn. Fyrir framan mig í röðinni var par á fertugsaldri og áður en ég vissi af var ég farin að gera úttekt á innihaldinu í körfunni þeirra. Og með hverri vörunni sem þau tóku upp úr körfunni og settu á færibandið þá varð ég meira og meira meðvituð um innihaldið í körfunni minni. Þarna streymdu upp úr körfunni þeirra alls konar fræ og bygg og korn og bio-þetta og bio-hitt. Lífrænt ræktaðar vörur í massavís, ávextir, Lindu McCartney heilsuréttir, veggie-ostur, soyamjólk og gróft pasta. Fitusnautt kjöt og alls konar krukkur og pakkar gríðarlega hollustulegir útlits eitthvað. Ekkert álegg. Ekkert gos. Engar venjulegar mjólkurvörur. Ekkert nammi..jú, einn bakki af kókosbollum og mér létti allsvakalega við þá sjón. En hvers konar fólk var þetta eiginlega? Ég laumaði kexinu og kleinunum oní poka og fór heim..
...
No comments:
Post a Comment