Undanfarna daga hef ég þurft að leita hælis í skúmaskotum heimilisins þar sem það er undirlagt af ryki, gifsi, málningu og smiðum.Einu staðirnir sem standa óraskaðir eru eldhúsið, svefnherbergið og baðherbergið. Sumsé "grunnstaðirnir" á heimilinu. Þetta gaf m.a. af sér langþráða fatatiltekt í fyrradag þegar rigning hamlaði útiveru og það eina sem ég gat fundið að gera var að fara í gegnum endalausa stafla af fötum. Þannig að í dag á ég ekki lengur endalausa stafla heldur bara örfá einmana boli. Á meðan bárust óhljóðin úr stofunni og loftinu, allt á fullu við að pússa og mála o.s.frv. Svona hefur ástandið verið alveg frá því áður að við hjónin héldum í söngferðina til Englands. Og svona verður þetta eitthvað áfram. En ég er samt sem áður alsæl, langþráðri bið eftri stórframkvæmdum er loksins lokið og það verður gaman að sjá fyrir endann á þessu.
Ferðin til Englands festi ást mína á Jane Austen, sveitasetrum, blómstrandi rósum og tei vel í sessi auk þess sem ég komst að því að það þarf að vanda valið þegar maður ætlar út að borða þarna. En meira um það seinna. Núna þarf ég að gefa smiðnum kaffi.
...
No comments:
Post a Comment