Wednesday, June 29, 2005

Síðasta vígið

Það er komið að því. Í kvöld þarf ég að flytja út úr svefnherberginu. Athvarfið mitt síðustu vikur á meðan iðnaðarmenn hafa hamast í öllum öðrum krókum og kimum hússins. Þarna gat ég horft á sjónvarpið og brotið saman þvott, lesið Jane Austen og spjallað við Sunnu kisu sem hefur ekki þorað yfir þröskuldinn í framkvæmdunum. Fengið smá hvíld frá því að skúra, þrífa og ryksuga upp gifsrykið og sagið. En núna þarf ég að flytja mig upp á efri hæðina og sofa innan um málningardollur og bókakassa. Mikið verð ég fegin þegar þetta er búið...

...

No comments: