Are you hungry?
Að þessu spurði Le Bon og svo var bara gefið í og allt í einu fannst mér ég vera 20 árum yngri. Frábærir tónleikar og ég hef sjaldan skemmt mér eins vel. Hoppaði og dansaði og söng með öll gömlu lögin. Þeir spiluðu minna af nýjum lögum en ég átti von á, en þau voru bara fín líka. Og þegar á leið fór heldur betur að hitna í salnum, mannfjöldinn iðaði allur og dansaði og blístraði og öskraði. Þvílíkt fjör. Og þarna skoppaði ég af mikilli innlifun innan um viðskiptamógúla, bankastjóra og fullt af svona séðogheyrtliði. Svolítið öðruvísi áheyrendur en maður sér almennt á popptónleikum. Og maður sá svo mikið af fólki sem maður þekkti eða kannaðist við enda var þarna mín kynslóð fremst í flokki. Og sumir hverjir greinilega miklir Duran Duran aðdáendur! Rúsínan í pylsuendanum var þegar eiginmaðurinn tók mig á hestbak þannig að ég sá vel yfir allt og ekki síst á sviðið. Svolítið mikill munur frá því að vera bara mínir rétt rúmir 160 cm. Og ég sá Simon stinga sér til sunds í mannhafið og allt gólfið í Egilshöllinni iða af lífi. Þvílík stemming! Og svo tóku þeir Wild Boys og ég hélt að höllin myndi hrynja, það var svo mikið stuð. Mér sýndist þeir félagar bara vera himinlifandi yfir góðum viðtökum, voru eiginlega hálflamaðir í lokin og kölluðu bara einhverjar ástarjátningar út í salinn. Og stelpan sem fékk að fara upp á svið og kynna Simon - stóð sig bara vel og sofnar örugglega með sælubros í kvöld!
Jæja, best að koma sér í háttinn. Ætli ég vakni ekki syngjandi í fyrramálið...
..
No comments:
Post a Comment