Tuesday, July 05, 2005

Blíðviðri, vinna og gifsryk

Það stefnir allt í að þetta verði hið fróðlegasta sumar. Maður verði bara á kafi í vinnu, njóti blíðviðris á heimleiðinni og fari svo beint í skítagallann að sópa og skúra og standa í flutningum á milli herbergja. Annars er nú farið að sjá fyrir endann á stórframkvæmdum, það er búið að setja í öll loftin, nú er málarinn að sparsla, pússa og mála eldhúsið og svefnherbergin og þá tekur parketlögnin við. Á meðan er verið að rústa innkeyrslunni hjá mér og nágrannanum og við hjónin pöntuðum okkur hellusteina í gær hjá BMVallá. Brátt get ég farið að flytja aftur húsgögn og dót inn í herbergi og setja allt á sinn stað. Og ætla að taka svolítið í gegn hjá mér leiðinni, vera svolítið grimm í að henda alls konar drasli sem ég hef engin not fyrir lengur. Og ganga frá öllum uppskriftunum og Gestgjöfunum sem eru í bunkum hingað og þangað, raða bókakiljunum upp og losa mig við þær sem ég vil ekki eiga. Og jafnvel reyna að koma smá skikki á myndirnar sem bíða þess að vera settar í albúm. Þessi verkefni verða reyndar að bíða mín þar til ég fer í sumarfrí eftir hálfan mánuð. Ég byrja nú reyndar fríið á því að skreppa norður á Strandir með fjölskyldunni í nokkra daga, en hef síðan rúma viku heima. Þá tekur við gönguferð vonandi að Fjallabaki, veiði í Grenlæk og útilega áfram austur á firði í nokkra daga. Svo er bara að halda heim á ný og reyna að gera eitthvað nytsamlegt síðustu dagana heima. T.d. eins og að hvíla sig eða fara í bíó! Ég hef nefnilega ekki farið í bíó í heila öld, eða því sem næst. Á t.d. eftir að sjá Star Wars, Batman og núna War of the worlds. En ég fór nú samt á Duran Duran. Það er barasta hápunktur ársins, já eða áratugarins. :o)

...

No comments: