Wednesday, July 27, 2005

Það er eiginlega svolítið lúmskt hversu mikill tími fer í að undirbúa eina gönguferð, sérstaklega þegar þetta er ekki eitthvað sem maður gerir í hverjum mánuði. Ég er eldsnögg að útbúa mig fyrir nokkurra daga útilegu eða jeppaferð inn á hálendið að vetri. Geri það venjulega á um klukkutíma. Það er venjulega það sama sem fer, ákveðinn fatnaður og ákveðnar töskur. Við hjónin erum líka komin með góða verkaskiptingu og í nokkuð föstum skorðum hver sér um hvað. Ég pakka öllu fatakyns og öðrum nauðsynlegum vörum sem er að finna inni. Hann sér um að jeppinn sé útbúinn, raðar inni í hann viðlegubúnaðinum og ferðadótinu og svo sjáum við sameiginlega um matinn. Hann man t.d. iðulega eftir góðum hníf, ég man eftir viskastykki. Hann man eftir ferðagasgrillinu og ólífuolíu , ég man eftir sundfatnaðinum og ferskum kryddjurtum. Ósköp rútinerað. Stundum rjúkum við inn jafnvel að sækja sama hlutinn. Gátlistinn er bara fastur í höfðinu á manni. Það setur mig stundum úr skorðum að pakka t.d. fyrir sumarbústaðaferð eða ferð þar sem við gistum í byggð og förum jafnvel út á meðal fólks í hálfgerðum sparifatnaði. Þá er ég alveg lost. Veit ekkert hvað ég á að taka með, horfi á Gore-tex buxurnar og gönguskóna og eftir smástund rofar kannski til og ég man að pakka gallabuxum, eitthvað sem venjulega sést ekki í vetrarferðunum. Gott dæmi um slíka ferð var Hofsjökulsrallýið í vetur, þegar við fórum norður yfir jökul og enduðum á Akureyri og gistum á KEA. Fórum út að borða um kvöldið og síðan heim Vonarskarð-Sprengisand daginn eftir. Það þurfti svona störu í kortér til þess að ég myndi eftir gallabuxum og hárblásara. Ég var ekki alveg að meðtaka það að í miðri hálendisferð myndi ég fara út á djammið. Í fjallaferðum "djammar" maður bara í flísfóðruðu buxunum og flíspeysunni (ef hægt er að kalla kvöldvökur og kjaftagang djamm...hmm..jú kannski). Mjög þægilegur fatnaður og veldur manni engum heilabrotum.

En núna er ég sem sagt að fara að ganga. Og stari stíft á minnislistann. Sem betur fer er þetta þó trússferð. Ég neita að borða frostþurrkaðan mat. Oj bara. Það þarf ekkert að slá af kröfum um hollustu og girnileika matar. Við Kerling sátum í gærkvöldi og spekúleruðum stíft hvað við ætluðum að borða. Og ég ætla sko að taka litla Grandpelann minn með. Og gott fótakrem og koddann minn. En annars er ég ósköp nægjusöm. Svo lengi sem ég sef á mínum kodda og fæ eitthvað ætilegt að borða þá er ég kúl. Er ekkert að stressa mig á sturtuleysi, hárið fer bara í spennu. Og þar sem ég hef verið í fjallaskálum að vetri með engu rennandi vatni og kamarinn lokaður af vegna snjóskafla þá er það bara lúxus að vera í sömu skálum að sumri.

...

No comments: