Sólbað eða bókhald?
Það er spurning dagsins. Ég held reyndar að svarið sé auðfundið. Tja, ekki nema að gera bæði í einu?!
Ég vaknaði fyrir allar aldir í morgun, þ.e. með eiginmanninum sem fer iðulega svo snemma í vinnuna að meira að segja flugurnar eru ekki byrjaðar að suða á þeim tíma. Ég hins vegar var bara of spennt til að sofa lengur. Framundan er ansi spennandi törn og ég veit varla á hverju ég á að byrja að undirbúa. Fer eldsnemma á fimmtudagsmorgun út úr bænum austur í Skaftártungur og ætla að tölta Sveinstind - Skælinga - Hólaskjól á meðan eiginmaðurinn leikur sér með öðrum stórum börnum á mótorhjólinu sínu. Kem heim á sunnudag í nokkra klukkutíma og skipti út göngubakpokanum fyrir veiðidót og svo aftur af stað austur, í þetta sinn í veiði í nokkra daga. Svo líklega heim aftur og nú bætum við fellihýsinu við útbúnaðinn og förum í svona "elta-besta-veðrið" leiðangur í nokkra daga. Kannski tökum við þetta allt saman með í veiðinu og höldum þaðan af stað, en ég er þó hins vegar hlynntari því að fara heim þarna á milli, er viss um að ég þyrfti þess hvort eð er þar sem ég eða við munum örugglega gleyma einhverju. En allavega, þá þarf ég helst að vera búin að pakka því sem ég þarf bæði í gönguferðina og í veiðina á morgun. Fatnaði, mat (allavega í gönguferðina) og öðru dóti sem þarf að slæðast með. Svo á ég í mikilli baráttu við sjálfa mig um hvort ég eigi að kaupa Potterinn fyrir gönguferðina eða veiðiferðina. Eða hvort ég eigi að spara hann fyrir útileguna og letilífið í fellihýsinu.
Ég fór í gær og keypti nýjan göngubakpoka. Hann er svo tæknilegur og flottur að gamli pokinn minn er eins og Trabant við hliðina á Audi í samanburði. Einnig laumuðust í innkaupapokann nýjar buxur og hitabrúsi (svona minni, ég á bara risabrúsa). Ég á það til að missa mig í útivistarbúðum. Get ekki að því gert en það jafnast alveg á við ferð í Gap eða Pottery Barn að komast í svoleiðis búðir.
En niðurstaðan er sem sagt sú að ég held ég sé bara orðin nokkuð góð í gönguferðina. Vonandi rætist veðurspáin sem segir að það verði þurrt fram á laugardag....
..
No comments:
Post a Comment