Friday, July 08, 2005

iPod

Ég á iPod. Hann er ekkert annað en snilld. Ég hafði mig í það loksins að hlaða inn iTunes í tölvuna og uppgötvaði nýjan heim. Hver þarf að fara út í plötubúð héðan í frá? Vinur minn hlóð öllu sínu inn á iPodinn og nú er ég að hlusta á Vivaldi og ætli ég bara hlusti ekki á U2 næst. Og svo fer ég bara í netbúðina og fæ mér Duran Duran. Svo spilum við þetta bara í jeppanum á mjög auðveldan hátt í bílgræjunum og eyðileggjum enga diska eða rispum þá. Bara allt á einum stað í pínulitlu tæki. Ég held ég hafi líka rekist á hljóðbók þarna, DaVinci lykilinn. Þessi tækni er ótrúleg! Við vorum einmitt að rifja það upp um daginn í vinnunni þegar maður hlustaði á lög unga fólksins á mánudagskvöldum og tók upp lögin á kasettutækið sitt. Aðeins öðruvísi en iPod!
Margt sem okkur þótti svo sjálfsagt er fyrir löngu orðið úrelt, jafnvel þótt það séu aðeins örfá ár síðan það var síðast notað. Það breytist allt svo hratt. Þótt ég telji mig nú ekki svo gamla þá fær maður ákveðnar efasemdir þegar maður verður vitni að því í Húsasmiðjunni að ung stúlka á kassanum segir við viðskiptavininn á undan mér þegar henni er rétt ávísun, "hvað er þetta?" "Ávísun" svaraði konan. "Ég hef aldrei séð svoleiðis, hvernig virkar það?" "Þetta er í raun eins og peningur, þú þarft að skrifa tékkaábyrgðarnúmerið á ávísunina". Við þetta svar konunnar varð þessi unga stúlka heldur kindarleg á svip og sagði með þessum tón unga fólksins þegar það veit allt best "Peningar? Ertu nú viss?"......

No comments: