Saturday, July 09, 2005

Wake me up!

Það er verið að spila Wake me up before you go go. Ég er ekki frá því að aukinn áhugi á goðunum mínum í útvarpinu hafi orðið til þess að gamla Wham hefur fengið smá upphefð í leiðinni. Æ, þeir voru nú svo sem ágætir. Þótt ég hafi ekki viðurkennt það fyrir 20 árum..

Það er voða notalegt að vera búin að heimta eldhúsið sitt úr helju. Það er gott að sitja aftur við eldhúsborðið sitt og drekka kaffibollann. Vantar bara blöðin. Ekkert Fréttablað komið ennþá. Óþolandi. Og nágranninn ber ekki út Moggann í sumar þannig að ég fæ ekki afgangsblöð á meðan. Ég auðvitað endaði inná mbl.is. Annars eru fréttir ekkert annað en dapurlegar þessa dagana. Það er eins og heimurinn sé á heljarþröm. Ef það eru ekki hryðjuverk, þá eru það náttúruhamfarir. Æ, ég heyri í lúgunni, kannski er blaðberinn á ferðinni!
...

1 comment:

Anonymous said...

Voðalega ertu vöknuð snemma!!!