Tuesday, July 12, 2005

Uppselt!

Las það í Fréttablaðinu að fólk mætir í stríðum straumum á ferðaskrifstofur og biður um ferð í sólina strax. Með grátstafinn í kverkunum og þunglyndislegum tón. Ég skil þetta fólk ósköp vel. Finn til með því þar sem allar ferðir eru meira og minna uppseldar.

Þegar ég kom heim áðan var Nebbi sofandi á sama stað og í sömu stellingu og hann var í morgun þegar ég fór. Nennti ekki einu sinni að opna augun þegar ég færði hann til svo ég gæti tekið rúmteppið til að þvo. Hann er líklega jafnþunglyndur og ég yfir veðrinu.

...

No comments: