Sunnudagsmorgunn
Það er ennþá vindasamt, smá rigning en það er samt ósköp notalegt að sitja hérna við eldhúsborðið, drekka kaffið sitt og aðeins að slaka á áður en ég dreg viðhengi vinnutölvunnar upp úr töskunni og fer að sinna lifibrauðinu. Aðstæður minna um margt á textann í lagi Jóns Ólafssonar, nema það að fressinn minn er geldur og er skítsama um læðuna sem er á vappi hérna fyrir utan. Húkir bara á gluggakistunni og sníkir klapp. Ég held að það séu ekki bara við hjónin sem erum glöð með að fá eldhúsið aftur í samt lag, ferfætlingarnir virðast líka meira afslappaðir. Undanfarnar vikur hafa verið þeim erfiðar, kettir eru eins og lítil börn þegar kemur að umhverfinu, heimilið á að endurspegla öryggi og þegar því er rústað, fleti og bæli eru horfin og matardiskurinn færður til og frá, þá verða þeir óöruggir, vælnir, eirðarlausir og geta tekið upp á allskonar óskunda.
Annars kláraði ég síðustu aðalbláberin mín úr frystinum í gær. Ég verð að fara að huga að hvert eigi að halda i berjatínslunni. Það er margt sem kemur til greina en Vestfirðirnir toga mest, kannski af því að ég þekki best til þar í sambandi við berin. En það freistar að kíkja líka á Norðurland, ég sá fullt af glæsilegum berjastöðum þegar við hjónin skelltum okkur á Sigló í fyrrasumar og heimsóttum líka Ólafsfjörð. Svo rámar mig í gríðarleg berjalönd á Austfjörðum, en ég var bara fimm ára þá og líklega var allt stórt á þeim tíma. Hef ekki verið þar á ferð á berjatíma síðan þá. En mig grunar að berin verði seint tilbúin núna, mun seinna en undanfarin ár....þ.e. ef þetta blessaða veður heldur áfram að vera svona leiðinlegt.
Talandi um Vestfirði, hvernig gat þetta farið fram hjá mér???
....
No comments:
Post a Comment