Thursday, July 14, 2005

Veeiiiiiiii!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Loksins! Dagurinn í dag var frábær. Byrjaði á því að setjast út með kaffibollann og hlusta á fuglana og sjóinn. Dró svo eiginmanninn í sund, náði í tölvuna í vinnuna og meldaði mig absent í allan dag. Kíkti svo í heitan sólbaðspott í Fossvoginn hjá Kerlingunni og grillaðist þar vel fram á eftirmiðdaginn ásamt Skrukku og þeira viðhengjum og afkvæmum. Kom heim rétt áðan og er núna að sötra kaldan bjór og undirbúa matinn. Kjúkling, salat og hrísgrjón. Bara svona sumarlegt þar sem sumarið ákvað að láta aðeins sjá sig á suðvesturhorninu áður en að ég leggðist í veðurþunglyndi af verstu gerð... Freknan á efri vörinni er farin að láta kræla á sér þannig að þetta er allt á réttri leið. Sem sagt, frábær dagur. Verður enn betri þegar ég fæ mér Mars ís í eftirrétt. Namminamm...

....

No comments: