Friday, July 15, 2005

Mér þótti það alveg stórfrétt

að lesa að Brad Pitt hefði lent á sjúkrahúsi alvarlega veikur. Þetta varð jafnvel umræðuefni í vinnunni og vonuðumst við auðvitað að þetta yrðu nú allt í lagi. Ég hef svo sem aldrei verið neinn Pitt fan, en finnst hann samt "easy on the eye" eins og Letterman myndi orða það. En hann var svo með heilahimnubólgu karlgreyið. Annað dæguráhugamál þessar vikurnar er eftir sem áður Duran Duran. Rakst á myndir á mbl.is og sé að Árni ljósmyndari var greinilega hrifnastur af Simon. Ekki skrítið því sá stóð sig frábærlega. En gaman að skoða myndirnar!

Fríið er alveg á næsta leiti. Ég er samt alveg endurnærð eftir sólina og sundið í gær þannig að ég er ekki alveg eins aðframkomin. Það sem einn sólardagur getur breytt! Magnað!

Að lokum....konurnar á gæsluvöllunum í Reykjavík sem átti að setja út í horn svona "pent". Alveg magnaður andskoti að kalla það "misskilning". Það átti bara ekkert að gera þrátt fyrir yfirlýsingar í vor en núna allt í einu á að uppfylla loforðin. Hvað með öll hin tilfellin þar sem þær hafa bara verið settar út í horn? Einhvern vegin er ég svo viss um að það er sífellt að gerast en þær láta sjaldnast í sér heyra. Ágætt að yfirvöld sáu að sér í þessu tilfelli. 22 konum færra sem átti að valta yfir og loksins farið að nota orðið starfslokasamningur í sama mund og starfslok kvenna. En það situr í mér orðnotkun Stefáns Jóns, að verið væri að reyna að skoða hvernig væri hægt að gera vel við þær "umfram ítrustu kjarasamninga". Ég hef það á tilfinningunni að kjarasamningar séu sjaldnast að þvælast fyrir þegar þessum körlum er ýtt út í horn með feitan starfslokasamning í vasanum.

...

No comments: