Veðurvíti
Þetta var áhugaverð ferð norður á Strandir. M.a. fyrir þær sakir að sjá með eigin augum við hvers konar veðurlag langaafi minn mátti búa við jafnvel um hásumar. Ég hefði ekki orðið hissa þótt allt í einu hefði rignt eldi og brennisteini í bókstaflegri merkingu. Við upplifðum hins vegar þessa óbeinu merkingu þegar við vorum stödd rétt hjá mestu galdrabrennum sem orðið hafa á Íslandi. Sáum einnig fálka á sömu slóðum sem hvarf í veðursortann. Fossinn fyrir ofan sumarhúsið réðist að manni með miklu offorsi í hvert sinn sem maður vogaði sér út á trappir, gnýrinn slagaði vel upp í Gullfoss, hamurinn og heiftin var svo mikil í vatninu sem virtist koma úr öllum áttum. Alls staðar voru æðarkollur í vari fyrir mesta briminu og varla heyrðist í mávi fyrir rigningu og roki. Kræklóttir vegræflarnir hangandi í hlíðunum voru ekki mjög kræsilegir að mati sumra fjölskyldumeðlima og þræddum við þessar varhugaverðu slóðir, þar sem reglulega hrundi úr hlíðunum, af mikill varfærni og af hálfgerðri vantrú. Eru svona staðir ennþá til á Íslandi?
Fyrir um 3 árum komum við hjónin þarna við á rúntinum í frábæru veðri og þá er fátt annað hægt að kalla Strandir en paradís. Fuglalíf, stórfengleg fjöll og víðáttumikil sýn út á hafið. Litir í náttúrunni hvert sem litið var og notalegt að sjá rósótt sængurver hanga úti á snúrum og blakta í andvaranum. Borða nestið sitt í fjörunni og fylgjast með æðarungunum og tína nokkrar hundasúrur. Leggjast í hlíðina með góða bók á meðan eiginmaðurinn gægðist eftir silungi.
Strandir í þoku, rigningu og roki eru helvíti miðað við þá upplifun.
Það var ákveðinn léttir að koma niður Holtavörðuheiðina í sól og heiðskíru og heyra traustvekjandi hljóð í gemsanum tilkynna um sms. Og enn betra að koma heim, heyra veðurspána og vita að maður er allavega staddur í augnablikinu á réttum stað miðað við þá spá.
En ferðin verður samt sem áður minnisstæð...
..
No comments:
Post a Comment