Sunna næturvörður
Er komin í sumarfrí. Finally. Endlich.
Vaknaði reyndar fyrst hálfsex. Glaðvaknaði. Er nefnilega enn með hálsbólgu og nú gat ég varla andað. Heyrði líka einhver óhljóð niðri og ákvað að athuga hverju sætti fyrst ég var vöknuð. Sunna urraði og hvæsti meira en venjulega sem er yfirleitt merki um óboðinn gest af ferfættu kyni. Og jú, rétt var það. Feitur og pattaralegur svartur og hvítur kisi var í eldhúsinu. Ég hleypti greyinu út sem varð hálfskelkaður að sjá mig þótt hann skætti lítið um hvæsandi loðdýrið. En þar vanmat hann hver er grimmastur katta í þessu húsi. Það er nefnilega puntudýrið Sunna. Gullinhærði græneygði persinn hún Sunna. Og í þann mund sem ég opnaði fyrir kattgreyinu skaust hún eldsnöggt framhjá mér og gaf gestinum einn á hann. Fast. Aðrir heimilisferfætlingar nenntu ekki einu sinni að opna augun, hvað þá að lyfta höfði. Að þessum hasar loknum, og einni matskeið af amerísku kvefundralyfi skreið ég aftur undir sæng. Svaf að þessu sinni til að verða níu.
Annars ber það hæst í þessa dagana fyrir utan framkvæmdir sem eru að gera mig gráhærða, að eiginmaðurinn lét langlanglangþráðan draum rætast (að eigin sögn) og festi kaup á "enduro" torfærumótorhjóli í vikunni. Hann er búinn að fara að hjóla með vini sínum tvisvar síðan þá og miðað við göngulagið í gærkveldi verður fróðlegt að sjá hversu kattliðugur hann verður í dag...eða þannig. Það kemur mér á óvart hversu mikil líkamsáreynsla þetta er, þeir verða alveg kófsveittir og fá harðsperrur í allan skrokkinn. Þetta kannski verður til þess að hann fær einhverja líkamsrækt út úr þessu, ég var búin að gefa upp alla von..
...
No comments:
Post a Comment